Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum

Minjasafnið á Akureyri, Akureyri Museum, Historicla Museum, Akureyri History, Exhibitions Akureyri, Menning á Akureyri

Flýtilyklar

Safnbúð

Í safnbúð Minjasafnsins má finna þjóðlegan fróðleik, íslenska hönnun og handverk og margt fleira athyglisvert, muni sem tilvaldir eru sem hverskyns tækifærisgjafir.

Umsjón með verslun hefur Kristin Sóley Björnsdóttir - kristinsoley@minjasafnid.is

 Sýnishorn úr safnbúð

Sjónabók

Íslensk sjónabók er nú fáanleg í safnbúð Minjasafnsins. Um er að ræða handrit með munstrum sem notuð voru í hannyrðum á 17.-19.öld, brunn hugmynda með sterka tilvísun í íslenskan menningararf sem nýst getur sérlega vel til nýsköpunar.                                         

Heimilisiðnaðarfélag Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og hönnunar- og arkítektúrdeild Listaháskólans gáfu bókina út vorið 2009. Bókin er bæði á íslensku og ensku og henni fylgir geisladiskur með öllum munstrunum sem hægt er að prenta út að vild til notkunar í hönnun, handverki og/eða kennslu.

Verð: 18.200,-

BAGUS - lyklahús

Falleg lítil lyklahús frá danska fyrirtækinu Bagus. Húsin eru hengd á vegg og inní þeim hvílir fuglinn (lyklakippan) þar til eigandi þarf á lyklunum að halda. Fuglinn er einnig flauta.

lyklahus_120

(lyklakippa í húsi 2.290,-)

BAGUS - snagar:

Snagar frá danska fyrirtækinu BAGUS, í laginu eins og trjágrein sem á situr litill fugl í lit. Snagarnir eru úr plasti og eru seldir saman tveir í pakka.

img_1463_400

(snagar frá Bagus, tveir í pakka á 2.990,-)

SUÐUSÚKKULAÐI úr Þjóðminjasafni:

Siríus suðusúkkulaði 200 gr. í gamaldags umbúðum frá Þjóðminjasafni Íslands.

HEIMAGLÓÐ - ilmkerti:

Kerti gerð úr 100% íslenskri tólg að viðbættri ilmolíu, lit og gulldufti. Tólgin er hrein náttúruafurð, unnin úr lambamör hjá Stóruvöllum ehf. í Bárðardal.

img_1470_400

(Heimaglóð ilmkerti 950,- og súkkulaði frá Þjms 600,-)

ÁLFADÍSIR

Álfadísir eftir Írisi Ólöfu Sigurjónsdóttur textíllistakonu, endurunnar úr ýmsum efnum.

img_1472_120

(álfadísir 2.200,-)

MARGRÉT JÓNSDÓTTIR

Margrét Jónsdóttir leirlistarkona á Akureyri hefur í samvinnu við Minjasafnið hannað þessi fallegu drykkjarmál með merki safnsins.

 lattebollal_400 

  (Drykkjarmál kr.4.500)

HUGRÚN ÍVARSDÓTTIR

Mynstrað munngæti - heimilistextílar hannaðir af Hugrúnu Ívarsdóttur. Um þrjár línur er að ræða, fyrst ber að nefna okkar þjóðlega Laufabrauð sem fæst í tveimur litum, rauðu og dröppuðu, þá er það Blóm lífsins, mynstur unnið upp úr gömlu söðuláklæði og voru teikningar eftir Sölva Helgason einnig hafðar þar til hliðsjónar og í þriðja lagi er nýjasta línan Brostu með hjartanu, munstur unnið upp úr hjartamunstri Akureyringa og er framleidd í þremur litum, bláu, grænu og bleiku. Í safnbúðinni seljum við værðarvoðir, viskastykki, löbera, svuntur, munnþurrkur, servéttur og kort.

loberl_400 

(löber "Blóm lífsins" kr.5.600)

AURUM:

Eftirfarandi skartgripalínur eftir Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur eru fáanlegar í safnbúð Minjasafnsins: Fold, Agla, Hafey, Salka, Ísold, Dögg, Embla og Svala.....eyrnalokkar, hálsmen, hringar, armbönd - sjón er sögu ríkari!

foldhraunlokkar_400salkahlsmen1_400
(Fold eyrnalokkar kr.13.500 - Salka men kr. 29.500)

HEKLA ISLANDI:

Kerti, servéttur og tækifæriskort unnin af Heklu Björk Guðmundsdóttur undir áhrifum frá íslenskri náttúru. Eigum til einar tíu gerðir af þjóðlegum servéttum, fjórar af kertum og einnig glæsileg kort eftir listakonuna.

berjakertil_400 fuglaservetturl_400
(kerti krækiber kr.1.990 - servéttur spói/lóa kr. 750)

HREFNA-HRINGAR:

Fallegir heklaðir hringar í ýmsum litum með perlu/steini. Málmur í baugi nikkelfrír og stækkanlegur.

 hringurhrefna_400  hringarl_400

                            (heklaður hringur kr.3.900)                               

SÆLUSÁPUR:

Gæðasápur úr náttúrulegum íslenskum hráefnum s.s. tólg, lífrænu byggi, villtum jurtum úr heimahéraði og mjólk úr þingeyskum kúm, eru framleiddar af fyrirtækinu Sælusápur-Lón ehf. í Kelduhverfi. Hægt er að velja um 16 mismunandi tegundir af sápum. Ný framleiðslulína er tólgarilmkerti, sem unnin eru m.a. úr íslenskri tólg í samstarfi við Stóruvelli ehf. í Bárðardal. Tvær útgáfur verða til sölu fyrst um sinn, annars vegar Heimaglóð með rósailmi og hins vegar Vinaglóð með lavender-/vanilluilmi.

sapurliturl_400

                                                             (Sápa kr. 750)

ALVARA.IS:

Handvinnupakkar framleiddir af Alvara.is, ýmis munstur til útsaums, hnútar og rósir unnar m.a. upp úr gömlum íslenskum sjónabókum.

 pudamynstur

(útsaumspakkar:Riddararós kr.4.100 - Öræfarós kr.1.990)

 DALVÍKURSLEÐI:

Magasleðar sem smíðarir voru m.a. á Dalvík í stórum stíl um miðbik síðustu aldar, voru fyrirmynd Dags Óskarssonar hönnuðar við gerð á Dalvíkursleðanum. Eigum til 2 liti í safnbúðinni.

dalvikursledi_01

(Dalvíkusleði kr.12.500)

Mynd augnabliksins

45_Gook-411.jpg

Opnunartími/Opening hours

Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum 
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -15.september 
Every day from 10-17
from June 1. - 15. September

Nonnahús - Nonni's House
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -1.september 
Every day from 10-17
from June 1. - 1. September

Davíðshús - Sigurhæðir
Davíðs Stefánsson Memorial Museum                                                                            
                        

& Matthías Jochumsson Memorial Foundation
Opið virka daga 13-17
frá 1.júní -1.september 
Weekdays from 13-17
from June 1. - 1. September

sími/Tel: 571-1830(summer) 462-4162 (winter)  

Utan opnunartíma - Different hours 
Opið eftir samkomulagi.
Open by appointment. Please contact:

Haraldur tel: 462-4162 or haraldur@minjasafnid.is

Skrifstofa safnsins er opin
alla virka daga frá kl. 8-16.

Sími: 462-4162 & 895-3171
Sími Laufáss: 463-3196 & 895-3172
Sími Davíðshúss:  571-1830
Sími Nonnahúss:  462-3555

minjasafnid@minjasafnid.is

Tekið á móti skólahópum alla virka daga.
Bókanir hjá ragna@minjasafnid.is

 Minjasafnið á götukorti

Póstlistar


...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Framsetning efnis

English