Lengi vel þekktu erlendir kortagerðarmenn lítið til landsins, höfðu mögulega óljósar fregnir af því og færðu hringlaga eyju inn á Evrópukortið. Þegar framliðu stundir breyttist landið úr torkennilegri eldfjallaeyju með sjóskrýmslum og furðuverum í kunnulegt land með stórskorinni strönd. Kortin endurspegla aukna þekking Evrópubúa á umheiminum eftir því sem fram líður. Á kortunum fjölgar örnefnum og upplýsingum skráðum af vísindalegri nákvæmni, sem þó ber fagurfræði þeirra ekki ofurliði.

Kortin eru gjöf þýsku hjónanna dr. Karl-Werner Schulte og Giselu Schulte-Daxboek til íbúa Akureyrar. Þau hafa safnað kortum af Íslandi eða þar sem landið er hluti Evrópukorts um áratuga skeið. Schulte hjónin tóku ástfóstri við Ísland og Akureyri fyrir nokkrum árum og ákváðu að gefa þau til Akureyrar.