    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - Hallgrímur Einarsson. Ljósmyndir frá Akureyri 1895-1930 
89-he-077.jpg
Sjómaður.]]></description>
102-h1-256.jpg
Gamli bærinn á Naustum. Árið 1909 var Naustaland að fullu sameinað lögsagnarumdæmi Akureyrarkaupstaðar. Landamerki Nausta og Eyrarlands voru á sínum tíma við Búðargil, en Nausta og Kjarna við Grásteinsgil. ]]></description>
100-m1-b-317.jpg
Við Hraunsvatn í Öxnadal.]]></description>
101-l-0190.jpg
Glerárfoss áður en hann var virkjaður árið 1922.]]></description>
99-h1-271.jpg
Þingmálafundur á Grund í Eyjafirði. Til vinstri er íbúðar- og verslunarhús Magnúsar Sigurðssonar, bónda og kaupmanns, byggt árið 1893. Þá er Grundarkirkja, sem Magnús reisti árið 1905. Hún er ein stærsta kirkja í sveit á Íslandi og þykir meðal þeirra fegurstu. Lengst til hægri er Grundarbíllinn, sem Magnús keypti árið 1907. ]]></description>
98-h1-265.jpg
Hrafnagil í Eyjafirði. Fram til ársins 1862 áttu íbúar Akureyrar kirkjusókn að Hrafnagili, en það ár var fyrsta kirkja Akureyrar byggð og tekin í notkun 1863. Nokkrir þeirra muna sem þá voru fluttir úr kirkjunni á Hrafnagili eru nú varðveittir í Minjasafninu á Akureyri, m.a. skápur frá 1672 og messuhökull frá 1682. Á Hrafnagili bjó í mörg ár séra Jónas Jónasson, sem var prestur í Grundarþingum á árunum 1884-1910 og prófastur í Eyjafirði árin 1897-1905. Hann var þjóðkunnur fræðimaður og rithöfundur, skrifaði og þýddi fjölda bóka. Kunnasta rit hans er Íslenskir þjóðhættir. Hann ritstýrði tímaritinu Nýjar kvöldvökur 1907-1916 og gaf það út.]]></description>
97-m1-b-312.jpg
Á hlaðinu á Stóra-Eyrarlandi árið 1913. Kristín Guðmundsdóttir á Skjóna með dóttur sína, Snjólaugu Baldvinsdóttur. Anna Tómasdóttir, kona Jóns Helgasonar, sést í bæjardyrunum. Eyrarlandsbærinn var rifinn árið 1949.]]></description>
96-m3-_4257.jpg
Ein af fyrstu sláttuvélunum á Akureyri. Nokkrar skútur liggja við akkeri á Pollinum. Myndin er tekin austan Eyrarlandsvegar, syðst.]]></description>
95-h1-245.jpg
Í brakandi þerri vinnur fjölskylda og kaupafólk Axels Schiöths bakarameistara við heybindingu og flutning á heyi í hlöðu á Sunnuhvoli ofan Búðargils.]]></description>
94-f1-166.jpg
Hross seld til útflutnings.]]></description>
93-m3-_4279.jpg
Á síldarplaninu. Hver tunnan af annarri fylltist af fallegri síld.]]></description>
92-f1-151.jpg
Margar húsmæður á Akureyri drýgðu í þá daga tekjur heimilanna með því að salta síld.]]></description>
91-f1-170.jpg
Síldarsöltun á Oddeyrartanga. Baldur ER 146 við bryggju.]]></description>
90-h2-427.jpg
Síldartunnur á Oddeyrartanga. Háa húsið með kvistinum er Norðurpóll, Gránufélagsgata 57, eða Nordpolen eins og stóð á húsinu. Það var byggt 1907 og rifið 1979. Þekktastir eigendur þess fyrstu árin voru Magnús Þórðarson og Sigríður Ingimundardóttir. Í þessu fallega og reisulega húsi var gisting og greiðasala og voru útlendingar, sérstaklega Norðmenn, þar tíðir gestir á síldarárunum 1910-1920. Húsið til hægri er Gránufélagsgata 53, byggt 1916-1918, kallað Litla-Reykjavík. Fyrsti eigandi þess og sá sem lét byggja það var Elías Stefánsson útgerðarmaður. Hann réð hóp kvenna úr Reykjavík til þess að salta síld á Tanganum á sumrin og var þetta hús heimili þeirra þann tíma. Þess vegna fékk húsið þetta nafn og ber það enn í dag. Syðst á Tanganum er uppsátur skipa.]]></description>
87-h2-010.jpg
Akureyri 1915. Myndin er tekið úr Strandgötu og eru bryggjur Havsteens og Snorra Jónssonar hið næsta. Fögur fjallasýn til suðvesturs og ber Súlur við himin. Í brekkunni norðan Samkomuhússins er húsið Sjónarhæð, Hafnarstræti 63, byggt 1901. Það var íbúðarhús og samkomusalur Arthurs Gook trúboða. Í húsinu var útvarpsstöð á árunum 1926-1929, ein hin fyrst hér á landi. Gook gerði einnig tilraunir með að ná sjónvarpsútsendingum með góðum árangri. Uppi á Brekkunni sést hið glæsilega hús Gagnfræðaskólans, nú Menntaskólinn á Akureyri, en til  vinstri við það er Eyrarlandsbærinn og „Stofan“. Húsið með hvíta stafninum er Eyrarlandsvegur 26, hús Sigurðar E. Hlíðar dýralæknis og ritstjóra, nú hús kaþólska safnarðarins. Neðst við Eyrarlandsveginn er hús nr. 8, kallað Æsustaðir, byggt árið 1906, og hús nr. 4, kallað Stóruvellir, byggt árið 1902. Neðar til vinstri er hús séra Matthúasar, Sigurhæðir, byggt árið 1903. Norðan við Grófargilið eru húsið Garður (ofar) og tvö hús á svokölluðu Skessunefi, nú við Gilsbakkaveg.]]></description>