Nonnahúsi hefur tímabundið verið breytt í jólahús. Þar gefur að líta hvaðeina sem snýr að jólahaldi. Snertu á og þefaðu af jólunum á tilraunaborðinu eða gerðu jólakort eða merkimiða.
Jólafjallið og óþekktu jólasveinarnir eru eins og áður á Minjasafninu. Komdu og kíktu í jólafjallið, skoðaðu óþekktu jólasveinana og klæddu þig í alvöru jólasveinabúning.
Aðrar sýningar safnsins eru: Í skugganum, Tónlistarbærinn Akureyri og Akureyri bærinn við Pollinn. Á þeim er t.d. hægt að prófa hljóðfæri, fara í búning eða setja upp hatt.

Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn. Eldri en 17 ára greiða 1000 kr og geta komið aftur og aftur.