Í ár eru 100 ár frá því að ljóðabókin Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson kom út. Fáar íslenskar ljóðabækur hafa vakið aðra eins athygli og aðdáun. Ljóðin flugu beint í hjarta landsmanna og hefur engin ljóðabók verið gefin út jafn oft eða 13 sinnum.
Ljóð Davíðs hafa orðið mörgu tónlistarfólki innblástur að lagasmíðum. Nú langar okkur að bjóða þér að velja uppáhaldsljóðið þitt úr Svörtum fjöðrum sem Vandræðaskáld ætla að semja lag við og flytja seinna sama dag. Vandræðaskáldin Sesselja og Vilhjálmur verða með vinnustofu í Davíðshúsi sunnudaginn 3. mars frá 13-16 og er aðgangur ókeypis.
Ef þú átt ekki kost á að koma í heimsókn sendu okkur þína tillögu á minjasafnid@minjasafnid.is Verður þitt val á tónleikunum?
Fleiri viðburðir eru fyrirhugaðir á árinu í tilefni útgáfuafmælis Svartra fjaðra.
Viðburðaröðin Allar gáttir opnar verður haldin í sumar með sérstakri áherslu á ungt listafólk í bland við reyndara.
Svartar fjaðrir í Hofi 10. nóvember er samstarfsverkefni Minjasafnsins á Akureyri, Amtsbókasafnsins á Akureyri og Menningarfélag Akureyrar. Nánar auglýst síðar.
Aðgangur að vinnustofunni er ókeypis en á tónleikana kostar 2000 kr – athugið örfá sæti.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Eyþings.
Minjasafnið á Akureyri - Nonnahús daglega kl. 13-16
Laufás, Davíðshús og Smámunasafnið opið fyrir hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30.