Oddný Kristjánsdóttir, klæðskeri og kennari í þjóðbúningagerð, ásamt Júlíu Þrastardóttur gullsmið, veita ráðgjöf og upplýsingar um þjóðbúninga og búningasilfur.

Út úr skápnum - þjóðbúningana í brúk! er yfirskrift verkefnis sem Heimilisiðnaðarfélagið stendur fyrir í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins. Markmiðið er að hvetja landsmenn til að draga fram þjóðbúninga sem víða leynast í skápum. Sérstaklega er hvatt til þess að ungar konur klæðist búningum formæðra sinna, með því flyst sá menningararfur sem felst í þjóðbúningum á milli kynslóða.

Minjasafnið á Akureyri - Heimilisiðnaðarfélagið og Þjóðháttafélagið Handraðinn standa að viðburðinum.

Aðgangur ókeypis – Allir velkomnir.