Það verður líf og fjör þriðjudagskvöldið 17. desember á aðventukvöldi í Nonnahúsi og Minjasafninu. 

Starfsfólk safnsins ásamt þjóðháttafélaginu Handraðinn skapa skemmtilega stemningu í söfnunum. Hver voru handtökin við undirbúning jólanna?  Leiðsögn um jólasýninguna Göngum við í kringum... svo verður slegið upp jólaballi í Minjasafninu kl. 20 þar sem við gerum einmitt það! Já og svo verður jólasveinn á stjái í sparifötunum.

Aðgangseyrir aðeins 1000 kr fyrir 18 ára og eldri. Fullorðnir í fylgd með börnum fá ókeypis inn.