Sjöundármálið er eitt af frægustu sakamálum Íslandssögunnar þar sem Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveinsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morð á mökum sínum, Jóni og Guðrúnu. Þessu fólki hefur margsinnis verið lýst út frá sjónarhóli yfirvalda.
Sjónarhornið er óvenjulegt í bókinni Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Þar segir hinn dæmdi, Bjarni Bjarnason frá Sjöundá, sjálfur frá æviskeiði sínu um leið og lífshlaup hans er tengt við tíðaranda 18. aldar. Frásögnin endar á aftöku Bjarna í Kristiansand í Noregi.
Dr. Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands, les valda hluta úr bókinni sem byggir á rannsókn hennar á aftökum eftir siðaskipti á Íslandi. Eftir Steinunni liggja verðlaunabækurnar Sagan af klaustrinu á Skriðu (2012) og Leitin að klaustrunum (2017) sem Sögufélag gaf út. Þá gaf Routledge út bók hennar Monastic Iceland (2023). Háskólaútgáfan gefur bókina Dauðadómurinn.
Bókin verður til sölu með 20% afslætti. Posi á staðnum.
Tilvalið að ná sér í áritað eintak.
Hvenær: 5. desember kl. 20
Hvar: Davíðshús – Bjarkarstíg 6
Aðgangur ókeypis
Akureyri Museum, Nonni's house, Industrial Museum, Akureyri Toy Museum: Daily 11-17
Laufás Heritage Site: Daily 11-17 /Winter closed
Davíð writers museum: Summer: Thuesday to Saturday 13-17
Sundry Collection: Wednesday - Sunday 13:00-17:00 June 18 to August 17.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is