Viltu koma í skemmtilegan leik í Gamla bænum Laufási á Barnamenningarhátíð?
Laugardaginn 3. október verður boðið upp á skemmtilegan leik fyrir krakka í Gamla bænum Laufási. Krakkarnir gerast persóna úr sögu Laufáss og fara um bæinn til að leysa ýmis verkefni. Í ferðalaginu um bæinn hitta þau fyrir fólk að störfum og kynnast bænum og lífinu í honum fyrr á tíð á skemmtilegan hátt.
Bærinn verður aðeins ætlaður börnum en foreldragæsla verður í Gestastofunni þar sem boðið er upp á kaffi.
Undraferðirnar eru tvær laugardaginn 3. október, kl. 11 og 13 og einungis pláss fyrir 20 krakka í hvorum hóp fyrir sig á aldrinum 10-14 ára.
Skráning fer fram á laufas@minjasafnid.is – þar þarf að koma fram nafn barns, aldur og sími forráðamanns.
Hvað þarftu?
Það eru Minjasafnið á Akureyri sem stendur að viðburðinum í samstarfi við Þjóðháttafélagið Handraðann. Viðburðuruinn er hluti Barmenningarhátíðar á Akureyri og er styrktur af Akureyrarbæ og Uppbyggingarsjóði.
Akureyri Museum, Nonni's house, Industrial Museum, Akureyri Toy Museum: Daily 11-17
Laufás Heritage Site: Daily 11-17 /Winter closed
Davíð writers museum: Summer: Thuesday to Saturday 13-17
Sundry Collection: Wednesday - Sunday 13:00-17:00 June 18 to August 17.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is