Listaparið Saga Garðars fyndlistakona og Snorri Helgason tónlistarmaður flytja dagskrá á léttu nótunum á Minjasafninu á Akureyri.
Þetta listapar er óþarft að kynna. En gerum það samt! Saga er löngu landsþekkt leikkona, handritshöfundur og uppistandari. Hún hefur starfað við öll atvinnuleikhús landsins, leikið í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, skrifað fjölda handrita og sketsa fyrir svið og sjónvarp m.a. áramótaskaupið. Þá er Saga reglubundið með uppistand og hluti spunahópsins Improv Ísland.
Snorri var hluti hljómsveitarinnar Sprengjuhöllin áður en hann hóf farsælan sólóferil. Snorri hefur gefið út fjórar plötur og er einn af stjórnendum þáttarins Fílalag.
Skellltu þér á uppistand og töfrandi tóna á Minjasafninu.
Athugið safnið tekur enga ábyrgð á háturtaugum og tóneyrum.
Akureyri Museum, Nonni's house, Industrial Museum, Akureyri Toy Museum: Daily 11-17
Laufás Heritage Site: Daily 11-17 /Winter closed
Davíð writers museum: Summer: Thuesday to Saturday 13-17
Sundry Collection: Wednesday - Sunday 13:00-17:00 June 18 to August 17.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is