Við Hafnarstræti. Næst er barnaskólinn, Hafnarstræti 53, byggður árið 1900. Kennsla fór hér fram allt til ársins 1930, að flutt var í nýja skólahúsið á Brekkunni. Síðan Hafnarstræti 57, Góðtemplarahúsið – samkomuhús, leikhús, byggt 1906. Á efri hæð að norðan voru bæjarstjórnarfundir haldnir á „Litla sal“. Á neðstu hæð voru bæjarskrifstofurnar til ársins 1953. Þangað var Amtsbókasafnið einnig flutt úr Ráðhúsinu í Búðargili. Bókaverðir vorfu í mörg ár hjónin Guðrún Davíðsdóttir og Jóhann Ragúelsson og síðar Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi. Loks er hús Boga Daníelssonar, Hafnarstræti 64 og hús Sigurðar Fanndals kaupmanns, Hafnarstræti 66. Þar var póshús og samkomusalur með leiksviði. Það brann árið 1951.
Akureyri Museum & Nonni's house: Daily 11-17 / Winter: 1. October - 31. May - Daily 13-16
Akureyri Toy Museum: Summer: 1. June - 1. September - Daily kl. 11-17
Laufás: Summer: 1. June - 17. September - Daily 11-17
Lokað/Closed 24-26, 31. December and 1. January.
Open for groups all year.