Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum

Minjasafnið á Akureyri, Akureyri Museum, Historicla Museum, Akureyri History, Exhibitions Akureyri, Menning á Akureyri

Flýtilyklar

Laufás

laufas1_400_01

Laufás kemur við sögu skömmu eftir að Ísland byggðist og þar hefur staðið kirkja frá fyrstu kristni. Í katólskum sið var hún helguð Pétri postula. Prestssetur hefur verið í Laufási frá fyrstu kristni og er enn. Síðasti presturinn sem bjó í gamla bænum, séra Þorvaður Þormar, flutti árið 1936 í nýtt prestssetur og þar bjuggu Laufássprestar fram til ársins 2000.
Sú kirkja sem nú stendur í Laufási var byggð 1865. Meðal merkra gripa í eigu kirkjunnar er predikunarstóll sem ber ártalið 1698. Við austurgafl kirkjunnar stendur eitt elsta reynitré landsins frá 1855.

Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni en í elsta hluta gamla bæjarins sem nú stendur er talið að séu viðir allt frá 16. og 17. öld. Bærinn var endurbyggður af mikilli reisn í tíð séra Björns Halldórssonar sem sat staðinn árin 1853-1882. Laufásbærinn er stílhreinn burstabær, dæmigerður fyrir íslenska bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu stærri. Algengt var að tuttugu til þrjóatíu manns væru til heimilis í Laufási, því margt vinnufólk þurfti til að nytja þessa gróðursælu kostajörð en henni fylgdu mikil hlunnindi.

Laufásbærinn er nú búinn húsmunum og áhöldum líkast því sem tíðkaðist í kringum aldamótin 1900.

Opið er daglega frá 1.júní - 1. september frá 9-17.
Á veturna eftir opið eftir samkomulagi.

Í þjónustuhúsi er minjagripaverslun og Kaffi Laufás þar sem hægt er að kaupa þjóðlegar veitingar.

Veitingasalurinn í Laufási tekur 80 manns í sæti. Hann er leigður út fyrir ýmisskonar samkomur svo sem veislur, fundi eða þorrablót.

Hægt er að leigja Gamla prestshúsið í Laufási fyrir fundi og veislur. Salirnir rúma 80 manns í sæti.

Sími: 463 3194 eða 895 3172

Tölvupóstur: laufas@minjasafnid.is

Umsjónarmaður í Laufási er Hólmfríður Erlingsdóttir
Sími: 895 3172

VERÐSKRá:

Laufás

Lán á gamla bænum í Laufási að fengnu leyfi Þjms 30.000 á sólarhring,
Minjasafnsins verði getið

Leiga á veitingasal í Laufási 45.000 með starfsmanni og þrifum 

____ 

Handraðinn er hópur fólks sem vinnur að því að viðhalda þekkingu á þjóðháttum landsins hvort sem er í handverki, tónlist, sagnahefð eða náttúru.

Skoða heimasíðu Handraðans

Myndir úr Laufási

Mynd augnabliksins

83_A1-0142-1.jpg

Opnunartími/Opening hours

Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum 
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -15.september 
Every day from 10-17
from June 1. - 15. September

Nonnahús - Nonni's House
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -1.september 
Every day from 10-17
from June 1. - 1. September

Davíðshús - Sigurhæðir
Davíðs Stefánsson Memorial Museum                                                                            
                        

& Matthías Jochumsson Memorial Foundation
Opið virka daga 13-17
frá 1.júní -1.september 
Weekdays from 13-17
from June 1. - 1. September

sími/Tel: 571-1830(summer) 462-4162 (winter)  

Utan opnunartíma - Different hours 
Opið eftir samkomulagi.
Open by appointment. Please contact:

Haraldur tel: 462-4162 or haraldur@minjasafnid.is

Skrifstofa safnsins er opin
alla virka daga frá kl. 8-16.

Sími: 462-4162 & 895-3171
Sími Laufáss: 463-3196 & 895-3172
Sími Davíðshúss:  571-1830
Sími Nonnahúss:  462-3555

minjasafnid@minjasafnid.is

Tekið á móti skólahópum alla virka daga.
Bókanir hjá ragna@minjasafnid.is

 Minjasafnið á götukorti

Póstlistar


...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Framsetning efnis

English