safnleik2_400

 

 

Safnfræðsla í Minjasafninu á Akureyri

Skipulagðar heimsóknir fyrir leikskóla 

  

Fyrirkomulag heimsókna  

Boðið er upp á skipulagðar heimsóknir fyrir leikskólahópa í Minjasafnið á Akureyri. Tekið er á móti einum hópi í senn og tekur heimsóknin um 45-60 mínútur. Safnfræðslufulltrúi Minjasafnsins sér um leiðsögn og fræðslu í skipulögðum heimsóknum og mikilvægt er að panta þær tímanlega hjá Rögnu Gestsdóttur safnfræðslufulltrúa í síma 462-4162 eða á netfangið ragna@minjasafnid.is þar sem tilgreina þarf nafn leikskóla og kennara, fjölda barna og að lokum óskir um tíma, dagsetningu, sérþarfir barna ef einhverjar eru o.s.frv.

Kennarar/leiðbeinendur taka þátt í heimsókninni og eru hvattir til að undirbúa börnin og heimsóknina svo hún nýtist sem bes í leikskólastarfinu.  

Hin árlega jólavaka í Minjasafnskirkjunni á aðventu er á sínum stað – sjá dagskrá. 

Kennurum er velkomið að hafa samband sé frekari upplýsinga óskað og/eða að heimsækja safnið undir leiðsögn safnfræðslufulltrúa áður en hin eiginlega heimsókn fer fram. Við reynum eins og hægt er að koma til móts við óskir og ábendingar um viðfangsefni fyrir börn á leikskólaaldri og skoðum allar hugmyndir með jákvæðum huga.  

 

DAGSKRÁ

   

4-6 ára leikskólahópar                                                             Tími: sept-maí           

 

Akureyri bærinn minn                                           

Í heimsókn á sýninguna “Akureyri - bærinn við Pollinn” kynnast börnin bænum sínum eins og hann var í gamla daga. Þau skoða muni og myndir og reyna að gera sér í hugarlund hvernig umhorfs var á Akureyri fyrir hundrað árum síðan. Með hjálp uppsetninga fá þau innsýn í það hvernig fjölskyldur bjuggu og hvernig daglegu lífi barna var háttað í bænum. Rætt verður um leiki og störf barna áður fyrr og leikföng skoðuð. Gömul veiðarfæri verða til sýnis, kíkt verður til kaupmannsins og að lokum máta börnin skemmtilega hatta.  

  

4-6 ára leikskólahópur                                                Tími: 21.nóv-16.des                    

 

Jólavaka á söfnunum í Innbænum Samverustund í gömlu Minjasafnskirkjunni og Nonnahúsi á aðventunni þar sem börnin kynnast jólahaldi á Íslandi fyrr á öldum. Börnin sitja þétt á kirkjubekkjunum, þar er napurt og skuggsýnt og aðeins ljós frá kertunum í kirkjunni. Þau munu heyra þulur um gömlu jólasveinana og skoðaðir verða gamlir hlutir er tengjast jólahaldi liðinna alda. Æskilegt er að börnin komi með jólaskraut sem búið hefur verið til í leikskólanum og hengi það á gamla jólatréð í Minjasafnskirkjunni, sem verður síðan hluti af skrauti kirkjunnar.