Minjasafnið á Akureyri
  • Hafa samband
  • ENGLISH
  • Minjasafnið
    • Starfsfólk
    • Opnunartími
    • Hafa samband
    • Sýningar
    • Fræðsla
      • Safnfræðsla fyrir skólastig
      • Safnfræðsla fyrir leikskóla
    • Bóka heimsókn
    • Myndir
    • Starfsemi
    • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
    • Minjasafnskirkjan
    • Minjasafnsgarðurinn
    • Gjaldskrá
    • Gjaldskrá ljósmyndir
    • Stoðvinir
    • Stjórn Minjasafnsins
  • Laufás
  • Viðburðir
  • Fréttir
  • Opnunartímar
Forsíða / Minjasafnið / Myndir

Myndir

Fyrri 1 2 3 Næsta
Miðgarðakirkja í Grímsey (1867-2021).
Úr Grímseyjarsafni Helga Daníelssonar og Friðþjófs Helgasonar.

Miðgarðakirkja í Grímsey

  • 18 stk.
  • 22.09.2021

Mikil menningar- og samfélagsverðmæti urðu eldinum að bráð þegar eitt elsta hús í Grímsey, Miðgarðakirkja, brann. Kirkjan var mikilvægur hlekkur í samfélaginu á gleði og sorgarstundum auk þess sem hún var mikilvægur áfangastaður fyrir gesti af meginlandinu. Miðgarðakirkja var reist árið 1867. Árni Hallgrímsson (1832-1917) frá Garðsá í Eyjafirði var yfirsmiður hennar. Kirkjunni var breytt umtalsvert árið 1932 þegar bætt var við einfalt kirkjuhúsið forkirkju með háum turni og kór. Til hafði staðið að steinsteypt kirkja leysti gömlu kirkjuna af hólmi. Guðjón Samúelsson lagði fram hugmyndir árið 1925 að nýrri kirkju og báru endurbæturnar sem ráðist var í talsverðan svip af þeirri tillögu. Helgi Ólafsson smiður og bóndi á Borgum í Grímsey sá um endurbæturnar og fórst afar vel úr hendi að fella saman gamla kirkjuhúsið og nýbyggingarnar. Frekari framkvæmdir fóru fram á kirkjunni árið 1956 og var hún endurvígð 12. ágúst 1956 af Ásmundi Guðmundssyni biskup. Nokkrir góðir gripir glötuðust í eldinum. Predikunarstólinn frá 1867, altaristafla frá 1879 eftir Arngrím Gíslason málara, eftirmynd af kvöldmáltíðarmynd Leonardo da Vinci; fagurlega útskorinn skírnarfontur eftir Einar Einarsson frá 1958, og tvær fagrar söngtöflur eftir hann svo fáeinir gripir séu tilteknir. Þá er horfið handbragð þeirra sem reistu kirkjuna og máluðu. Myndir úr Grímseyjarsafni Helga Daníelssonar og Friðþjófs Helgasonar.

Skoða myndir
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Þorsteinsdóttir ásamt Sigfúsi Karlssyni, formanni stjórnar Minjasafnsins á Akureyri.

Heimsókn menntamálaráðherra maí 2021

  • 5 stk.
  • 20.05.2021

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, heimsótti skáldasöfnin Akureyri, Davíðshús og Nonnahús, til að kynnast starfinu sem þar fer fram. Á sýningu Minjasafnsins, Tónlistarbærinn Akureyri, var skrifað undir menningarsamning mennta- og menningarmálaráðuneytis og Akureyrarbæjar.

Skoða myndir
132. Þekkir þú… staðinn, fólkið, tilefnið eða árið? Sendu okkur póst minjasafnid@minjasafnid.is

Þekkir þú ... 2021

  • 170 stk.
  • 19.04.2021

Þekkir þú ... er ljósmyndasýning þar sem þú getur lagt þitt af mörkum. Þekkir þú staðinn, atburðinn, fólkið, húsið eða bílinn? Býrð þú yfir sögu sem tengist myndefninu? Minjasafnið á Akureyri býr yfir rúmlega 3.000.000 mynda. Mörgum þeirra fylgja takmarkaðar, jafnvel engar upplýsingar, eða okkur skortir þekkingu á myndefninu. Kannski býrð þú yfir henni og getur lagt okkur lið? Minjasafnið stendur árlega fyrir sýningu sem þessari og er hægt að sjá eldri sýningar á vef safnsins. Á þessari sýningu eru myndirnar m.a. úr safni KEA, einnig eftir áhugaljósmyndarann Hartman Eymundsson og ýmsa aðra.

Skoða myndir
Forsetinn kynnti sér plötuútgáfu Pálma Stefánssonar í Tónaútgáfunni.

Heimsókn forseta Íslands 14. júní 2020

  • 8 stk.
  • 16.06.2020

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson heimsótti Minjasafnið á Akureyri sunnudaginn 14. júní.

Skoða myndir
Hallgrímur Einarsson, ljósmyndari.

Hallgrímur Einarsson. Ljósmyndir frá Akureyri 1895-1930

  • 93 stk.
  • 20.04.2020

Hallgrímur Einarsson fæddist á Akureyri 20. febrúar 1878 og lést þar 26. september 1947. Hallgrímur var rak ljósmyndastofu á Akureyri frá 1903-1947 en tvö sumur þar á undan hafði hann ljósmyndað í myndastofu Önnu Schiöth. Hallgrímur var lærður ljósmyndari og nam iðn sína í Kaupmannahöfn 1894-1895. Eftir að hann kom úr námi rak hann ljósmyndastofu á Vestdalseyri þar til hann flutti starfsemi sína til Akureyrar. Hallgrímur var ekki bara öflugur ljósmyndari heldur einnig óspar á að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra. Þannig voru 19 nemar hjá honum á starfsæfinni þar af 7 sem hlutu meistararéttindi í iðninni. Enginn annar ljósmyndari hér á landi hafði jafnmarga nema. Ljósmyndir Hallgríms Einarssonar og stofunnar sem hann rak og síðar synir hans Kristján og Jónas eru varðveittar á Minjasafninu á Akureyri og eru upphafið af ljósmyndasafni þess. Í formála bókarinnar Akureyri 1895-1930 þar sem þessar myndir birtust segir Valgerður H. Bjarnadóttir: „Sérhverju bæjarfélagi er mikilvægt að eiga lifandi sögu. Hún eykur áhuga og virðingu íbúanna fyrir bænum. Akureyri á sér sögu, og gangirðu um gamla bæinn, Fjöruna, Innbæinn og Oddeyrina, blasa leifar hins gamla tíma alls staðar við. Húsin búa yfir leyndarmálum horfinna kynslóða. … Akureyri stendur í mikilli þakkarskuld við Hallgrím Einarsson, sem gerði tímabil í ævi bæjarins ógleymanlegt með töku fjölda frábærra ljósmynda.“ Heimildir: Inga Lára Baldvinsdóttir: Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945. Reykjavík 2001. Akureyri 1895-1930. Ljósmyndir - Hallgrímur Einarsson. Reykjavík 1982.

Skoða myndir
15.  Í fjörunni sunnan við Gránu á Akureyri.
Þekkir þú… staðinn, fólkið, tilefnið eða tímann?  Sendu okkur póst minjasafnid@minjasafnid.is

Þekkir þú ... 2020

  • 168 stk.
  • 13.03.2020

Sýning óþekktra ljósmynda sem opnuð var í febrúar 2020. Ef þú býrð yfir upplýsingum um myndefnið sendu okkur línu minjasafnid@minjasafnid.is

Skoða myndir
23. Uppskipun úr síðutogara Útgerðafélags Akureyringa um 1957. Ísfisknum var mokað í stórum kerjum á vörubílspall þar sem sólin bakar hann. Ljósmynd Geir Garðarsson.

Akureyri í 150 ár 1862-2012

  • 105 stk.
  • 21.04.2020

Ljósmyndir frá hverju ári frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi 1862 til ársins 2012.

Skoða myndir
Gætu verið tjaldbúðir norðan eða við mynni Dyngjufjalla.

2009 Þekkir þú... áningarstaðinn?

  • 93 stk.
  • 01.04.2009

Sýningin stóð frá 14. febrúar til 30.mars. Sýningin samanstóð af 80 óþekktum myndum m.a. nokkrar litmyndir sem talið er að séu meðal þeirra elstu á landinu. Myndirnar eru úr eigu Ferðafélags Akureyrar úr söfnum Bárðar Sigurðssonar og Ara Leós Björnssonar. Aðsóknarmet var slegið og 90% myndanna eru nú greindar.

Skoða myndir
Tillaga: Fagridalur, S-Múl.

2008 Þekkir þú... fjölbreytileika mannlífsins?

  • 83 stk.
  • 01.04.2009

Sýningin stóð frá 2. febrúar til 26. apríl. Hún samanstóð af 83 óþekktum myndum. Myndirnar voru úr söfnum ljósmyndastofu Jóns og Vigfúsar á Akureyri, Maríu Pétursdóttur og nokkurra annara áhugaljósmyndara. Greining myndanna gekk vel og 80% myndanna þekktust.

Skoða myndir
Fyrri 1 2 3 Næsta
  • Starfsfólk
  • Opnunartími
  • Hafa samband
  • Sýningar
  • Fræðsla
    • Safnfræðsla fyrir skólastig
    • Safnfræðsla fyrir leikskóla
  • Bóka heimsókn
  • Myndir
  • Starfsemi
  • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
  • Minjasafnskirkjan
  • Minjasafnsgarðurinn
  • Gjaldskrá
  • Gjaldskrá ljósmyndir
  • Stoðvinir
  • Stjórn Minjasafnsins
  • Aðalstræti 58
  • 600 Akureyri
  • Sími 462 4162
  • minjasafnid@minjasafnid.is

Opnunartími

Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús  opið  daglega 13-16

Iðnaðarsafnið opið daglega 13-16 

Laufás lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa

Leikfangahúsið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa

Davíðshús lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa

Smámunasafnið lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa

 

Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30