Fundargerð.

Stjórn Minjasafnsins á Akureyri kom saman til fundar í Aðalstræti 58 miðvikudaginn 6. september 2006.

Formaður setti fund og hóf dagskrá.

  1. Safnstjóri lagði fram yfirlit yfir stöðu bókhalds 31. ágúst miðað við fjárhagsáætlun.
    Rekstur, sumarstarf og viðhaldsliðir eru í samræmi við áætlun. Staða launaliðar lá ekki fyrir vegna afturvirkra starfsmatshækkana sem eru að koma til framkvæmda þessa dagana.
    Upp á áætlaðar tekjur vantar nokkuð, aðallega liðinn seld sérfræðiþjónusta. Þar vantar tekjur vegna þjónustu við Iðnaðarsafnið, vegna umsjónar með Gásaverkefninu, og vegna húsakönnunar á Oddeyri. Þær tekjur koma til skila síðar á árinu.
    Umræða varð um hvernig safnið gæti aukið tekjur sínar. Komu fram hugmyndir um markaðssetningu í samvinnu við aðrar stofnanir og fyrirtæki, og erlendis í tengslum við beint flug til útlanda. 
     Einnig var rædd staða safnanna í Innbænum og möguleikar á að auka umferð ferðamanna um þennan bæjarhluta. Fundarmenn voru sammála um að í bæjarhlutann vantaði kaffihús og meiri aðstöðu fyrir ferðamenn en nú er.
  2. Safnstjóri kynnti gróf drög að rekstraráætlun fyrir Minjasafnið 2007. Framkvæmdastjóri Héraðsnefndar Eyjafjarðar hefur áætlað launakostnað og lá sú tala fyrir til bráðabirgða. Drögin verða unnin frekar og lögð fram á næsta fundi.
  3. Rædd var þörf fyrir framkvæmdir árið 2007. Eftir er frágangur á handriðum við nýuppsettar lyftur innan- og utandyra. Þá þarf að mála að utan húsin á Naustum, og Minjasafnskirkjuna að innan.
    Rætt var um húsin tvö í Hrísey, Syðstabæjarhúsið og Holt, og að hvaða leyti starfsemin í þeim væri á vegum Minjasafnsins.
  4. Stjórnin þarf að leggja fram fjögurra ára áætlun í tengslum við fjárhagsáætlunargerð fyrir 2007. Rædd voru ýmis mál í því sambandi, svo sem framtíðaruppbygging safnsins í Aðalstræti og á Naustum, og endurnýjun grunnsýninga.  Á næsta fundi eiga að liggja fyrir tölur um áætlaðan kostnað nokkura brýnna verkefna.
  5. Safnstjóri lagði fram yfirlit yfir gestatölur í Minjasafninu og Laufási með samanburði við árið 2005.
    Heildarfjöldinn er 28.253 það sem af er ári, þar af 17.053 í Laufási. Mest aukning í Minjasafninu er vegna viðburða, og þar munar mikið um miðaldadagana á Gásum. Næstmest aukning er á komum skólabarna og annarra barna í safnið, en aðsókn íslendinga og útlendinga að sýningum safnsins er svipuð og árið áður.
  6. Önnur mál.
    Formaður stjórnar lagði fram til kynningar bréf frá Hrauni í Öxnadal ehf, dagsett 3. september 2006 og undirritað af Tryggva Gíslasyni. Erindið varðar uppsetningu og rekstur á minningarstofu um Jónas Hallgrímsson, sem opna á í maí 2007 á Hrauni.
    Stjórnin er reiðubúin að ræða við forsvarsmenn Hrauns ehf um málið.

Næsti fundur var ákveðinn miðvikudaginn 13. sept. kl. 18 í Aðalstræti 58.


Fleira ekki gert, fundi slitið.

Mættir voru:
Kristján Ólafsson, Ragnheiður Jakobsdóttir og Agnes Arnardóttir í fjarveru Guðrúnar Kristjánsdóttur. Margrét Jóhannsdóttir boðaði forföll, og varamaður hennar Dóróthea Jónsdóttir einnig.