
Höepfnershúsið, Hafnarstræti 20, er síðasta stórhýsið sem reist var í Innbænum. Það er kennt við Carl J. Höepfner stórkaupmann. Í húsinu var lengst um verslun oft nefnd Hvíta búðin enda hvít að innan sem utan og lýst upp með gasluktum. Í versluninni var um tíma selt áfengi í stórum stíl í sérdeild, víndeildinni!
Sumarið 1912 þegar verslunarhúsið var nýbyggt vann þar kornungur Haraldur Björnsson, sem síðar varð landsþekktur leikari:
„Ég … gerði ekki annað allan liðlangan daginn en afgreiða vín á flöskur sem viðskiptavinirnir komu með sjálfir. Í stóru herbergi inn af búðinni vóru fjórar stórar tunnur á stokkum, brennivín, koníak, romm og messuvín. Krani var á hverri tunnu og lekabyttur undir. ... Þarna vann ég um síldartímann frá klukkan átta á morgnana til átta á kvöldin og leit varla upp. Það fóru stundum margar tunnur af brennivíni á dag. Þó sást sjaldan vín á nokkrum manni. Á betri heimilum bæjarins var vínnotkun nokkuð algeng en það ríkti vínmenning í hvívetna. Það var ekki fyrr en 1915 þegar bannlögin vóru sett að almennur drykkjuskapur hófst. ...
Ég man bara eftir tveimur gömlum drykkjumönnum sem kómu í búðina á hverjum morgni klukkan átta. Annar var kallaður Eggert gosi, ákaflega mjósleginn og skjálfandi á beinunum, eiginlega ekkert nema beinin og skinnið. Hálfan pela fékk hann sér á morgnana og saup hann í einum teyg úr gömlu, kolryðguðu máli … Hinn hét Þórður Jónsson, rauður í framan og með herðakistil, greindur karl en heldur ófiskilegur. Hann fékk sama skammt, hálfan pela. Það lítur út fyrir að þetta hafi dugað þeim því svo sá ég þá ekki aftur fyrr en daginn eftir.“
Þarna vann líka Tómas, Tommi svarti sem hjálpaði Haraldi að koma tunnunum úr kjallaranum, þá var borað gat á þær og krana stungið í:
„Einu sinni man ég að ég var búinn að stinga krananum í en vissi svo ekki hvernig átti að snúa honum … Ég kjánaðist þess vegna til að segja við Tomma: „Sjúgðu Tommi og vittu hvort kraninn er opinn eða lokaður.“ Hann saug sig fastan. Ég þurfti að þrífa með báðum höndum í lubbann á honum til þess að geta losað hann. …Ég er viss um að hann hefur drukkið pott. Ég sá hann að minnsta kosti ekki meira þann daginn. Konan sem gerði búðina hreina var kölluð Dísa rauða og hún drakk líka. Ég held þau hafi drukkið saman, hún og Tommi. Hún var rauðhærð og rauð í andliti og ef hún var með sjal þá var ekki að sökum að spyrja að hún faldi flösku undir sjalinu.“
Þær heimildir sem stuðst var við og fleiri þar sem hægt er að lesa sér frekar til um efnið:
Prentaðar heimildir
Hjörleifur Stefánsson. Akureyri. Fjaran og innbærinn. Byggingarsaga. Reykjavík: Torfusamtökin etc., 1986. Sjá bls. 123.
Njörður P. Njarðvík. Sá svarti senuþjófur. Haraldur Björnsson í eigin hlutverki. Reykjavík: Skálholt, 1963.
Steindór Steindórsson. Akureyri. Höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur, 1993. Sjá bls. 104–105.
Þórhallur Bragason. „„Hér var staurabryggja byggð.““ Dagur, 27. apríl 1984, 16–17.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús - opið daglega kl. 13-16
Iðnaðarsafnið á Akureyri opið fimmtudag til sunnudags kl. 13-16.
Laufás, Leikfangahúsið, Davíðshús og Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Opið fyrir fyrirfram bókaða hópa á öllum söfnunum.
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvítasunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Nonni's house, and the Museum Churchse: Daily 13:00-16:00
Industrial Museum open Thursday - Saturday 13:00-16:00
Laufás Akureyri, Toy Museum, Davíð writers museum, and Museum of Things! Open for prebooked groups.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday