Nútíma maðurinn smellir af stafrænu myndavélinni sinni í sífellu jafnvel án þess að virða almennilega fyrir sér myndefnið sem framkallast jafn óðum. Helsta áhyggjuefnið er að tapa myndunum þegar tölvan bilar. Á fyrstu dögum ljósmyndunar var bæði tilefnið og myndefnið valið af kostgæfni enda ljósmyndir alvöru mál.
Á laugardaginn gefst tækifæri til að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með ljósmyndara taka ljósmyndir og framkalla með efnum og aðferðum sem notaðar voru um 1850. Hörður fer í spor Jóns Chr. Stefánssonar, timburmeistara og myndasmiðs sem fyrstur Íslendinga tók ljósmyndir með votplötutækni sem hann hafði lært í Kaupmannahöfn 1858. Hörður Geirsson ljósmyndasérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri hefur undanfarið ár numið 19. aldar ljósmyndafræði í Kalifornínu og gert tilraunir með slíka tækni sem kölluð er votplötutækni (wetplate) eða collodion. Notast er við framandi efni og myndin framkölluð á glerplötu og málmplötu. Hörður er nú að smíða eigin myndavél frá grunni en mun nota myndavél frá 1880 á laugardaginn ásamt færanlegu myrkraherbergi – myrkrakassa sem hann hefur smíðað.Látið ekki einstakt tækifæri framhjá ykkur fara og hverfa aftur í tímann til að fylgjast með 19. aldar ljósmyndaranum og töfrabrögðum hans frá myndatöku til framköllunar.
Sýnikennslan fer fram á Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 24. september milli 14 og 16.Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday