Dagbækur föður hans, sem dó meðan Jón var enn á barnsaldri, og sendibréf móður hans, lýsa á sláandi hátt endalausu basli, harðræði og veikindum en jafnframt einlægri löngun til að koma þeim börnum sem lifðu til manns. Þess vegna tekur móðir Jóns boði um senda hann utan til mennta aðeins 12 ára gamlan – og þau sáust aldrei framar.
Jón hlaut langa og stranga menntun og gekk inn í samfélag sem var eins fjarri íslenskum veruleika og hugsast gat. Hann gerðist kaþólskur prestur og kennari meðal Jesúíta og var sendur víða til starfa – en þó aldrei til Íslands eins og hugur hans stóð til. Iðulega átti hann í innri togstreitu sem birtist vel í dagbókarskrifum hans og bréfum. Sagnamaðurinn var aldrei langt undan, strax í æsku skrifaði hann sögur í stílakompuna sína. Köllun hans til ritstarfa, ásamt löngun til að hverfa aftur til bernskuáranna, varð að miklu höfundarverki og bækurnar um Nonna víðfrægar. Sögur hans voru þýddar á um 30 tungumál og komu út í stórum upplögum. Jón lést í Þýskalandi árið 1944, þar sem sprengjurnar drundu allt um kring.
Auðmjúkur prestur, rithöfundur, kennari, sagnamaður, fyrirlesari, tónlistarmaður, heimsborgari. Pater Jón Sveinsson lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns tíma.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús - opið daglega kl. 11-17
Iðnaðarsafnið á Akureyri opið fimmtudag til sunnudags 13-17.
Laufás, Leikfangahúsið, Davíðshús og Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Opið fyrir fyrirfram bókaða hópa á öllum söfnunum.
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvítasunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Nonni's house, and the Museum Churchse: Daily 11:00-17:00
Industrial Museum open Thursday - Saturday 13:00-17:00
Laufás Akureyri, Toy Museum, Davíð writers museum, and Museum of Things! Open for prebooked groups.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday