Draugar, draugahús, dularfull hljóð, drungalegir tónar og dulúðleg stemning, er meðal annars það sem gestir og gangandi munu upplifa frá Samkomuhúsinu og inneftir Innbænum, elsta hluta bæjarins,  næstkomandi föstudagskvöld 30. ágúst kl 22:30-23:30 í Draugaslóð Akureyrarvöku.   Í ár hefst slóðin í Samkomuhúsinu sem Leikfélag Akureyrar hefur breytt í draugahús. Þar munu gestir ferðast um rangala leikhússins, hitta ýmsar kynjaverur og fá reimleikann beint í æð. Tilkomumikil gandreið á vegum hestamannafélagsins Léttis verður á flötinni neðan við húsið. Gandreiðinni hefur verið frestað þar sem hestarnir eru allir í göngum ásamt eigendum sínum! Leikmynd þessa kyngimagnaða kvölds endar þó ekki þar því leiðin frá Samkomuhúsinu og inneftir Innbænum verður sveipuð dulúð og drungalegheitum þar sem örlitlar ljóstýrur munu lýsa upp garða, hús og stræti. Það verður því erfitt að gera greinarmun á verum þessa heims og annars sem líða mun um garða og port í eilífri leit að sálum sínum og annarra. Draugaslóðin er að þessu sinni í umsjón Akureyrarvöku í afar góðu samstarfi við Minjasafnið á Akureyri og  Leikfélag Akureyrar.   Vert er að benda á að þetta kyngimagnaða kvöld frá Samkomuhúsinu og  Innbænum getur skotið skelk í bringu ungra barna og viðkvæmra sála. Eftirtaldir aðilar gera þetta kyngimagnaða kvöld að því sem það er: Starfsfólk Minjasafnsins og Leikfélags Akureyrar ásamt leikurum og nemendum leiklistaskóla LA, Hestamannafélagið Léttir, Leikfélag Hörgdæla, Leikklúbburinn Saga,  Vættir,  Leikklúbbur Rósenborgar ásamt frábærum sjálfboðaliðum og síðast en ekki síst magnaðir íbúar Innbæjarins.