21. janúar er boðið til afmælis í Davíðshúsi við Bjarkarstíg 6 en þann dag árið 1895 fæddist Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, eitt ástsælasta skáld Íslendinga. Davíðshús er varðveitt nánast óbreytt frá því skáldið skildi við, rétt eins og hann hafi aðeins brugðið sér frá. Í viðtækjum má jafvel heyra í skáldinu lesa ljóð og hvort ef ekki heyrist í Gullna hliðinu. Verið velkomin n.k. þriðjudagskvöld milli 20-22.Aðgangur ókeypis.   

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi er eitt ástsælasta skáld Íslendinga. Fyrsta ljóðabók hans, Svartar fjaðrir, sem kom út árið 1919, flaug beint inn að hjarta þjóðarsálarinnar. Þar slógu hin tilfinningaþrungnu, myndrænu en ekki síst persónulegu ljóð í takt við tíðarandann. Svartar fjaðrir hafa verið gefnar út 13 sinnum síðast árið 2011. Davíð lét ekki þar við sitja. Þær bækur sem fylgdu í kjölfarið og leikrit eins og Gullna hliðið urðu til þess að festa Davíð í sessi sem eitt af höfuðskáldum Íslendinga á 20. öld. Ljóð Davíðs hafa orðið að tímalausri almenningseign og við þau samin fjölmörg lög enn í dag.

Heimili Davíðs, Davíðshús við Bjarkarstíg 6, hefur verið varðveitt sem safn eftir að hann féll frá, en þar er einnig fræðimannaíbúð. Húsið og heimilið ber þess glöggt merki hve skáldið var mikill fagurkeri og safnari af guðs náð. Húsakynnin bera smekkvísi hans glöggt merki, full af bókum, listaverkum og persónulegum munum, eins og hann skildi við árið 1964, næstum eins og hans sé að vænta innan skamms.