Raddir fortíðar leika um loftið í húsi við Bjarkarstíg. Þetta er hús Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Hús sem hefur staðið óbreytt í hálfa öld.

Árni Kristjánsson píanóleikari og Páll Ísólfsson tónskáld heimsækja Davíð til að fagna Gullna hliðinu, nýskrifuðu leikriti eftir skáldið. Þeir óttast að Davíð taki ekki vel í fréttirnar sem þeir þurfa að færa honum frá leikhúsinu fyrir sunnan.

En það eru annarlegri hlutir á seyði þetta kvöld og fleiri raddir á sveimi. Davíð tekst á við ástina sem aldrei gat orðið og einmanaleikann sem virtist alltaf koma aftur.

Hljóðverkið Söngur hrafnanna er í leikstjórn Viðars Eggertssonar Útvarpsleikhússtjóra en handritið er eftir Árna Kristjánsson. Hljóðvinnslu annast Einar Sigurðsson. Í verkinu er öllum aðferðum útvarpsleikhússins beitt til að sýna Davíð og samferðafólk hans með listrænum og manneskjulegum hætti. Verkið verður frumflutt á tilkomumikinn hátt í Davíðshúsi við Bjarkarstíg 6. Síðan verður verkið flutt sem páskaleikrit útvarpsins.

Persónur og leikendur:
Davíð: Ólafur Darri Ólafsson
Páll: Hannes Óli Ágústsson
Árni: Hilmir Jensson
Hulda: María Pálsdóttir
Gerda: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir

Verkefnið er samstarfsverkefni LA, Útvarpsleikhússins og Minjasafnsins á Akureyri

Sýningin er ein klukkustund og fer fram í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6