Jólastund á Minjasafninu fyrir 1.-5. bekk og elsta árgang í leikskóla
Notaleg stund þar sem blandast saman söngur og fróðleikur.
Hvað er í boði?
Jólafræðslan í ár verður tvískipt og tekur tæpan klukkutíma.
Á Minjasafninu í tónlistarsýningunni verður söngstund með Sesselíu og Siggu þar sem sungin verða ýmis jólalög. Í Minjasafnskirkjunni spjallar Haraldur safnstjóri við nemendur um jólasiði fyrr og nú. Skoðaðir verða ýmsir gripir sem tengjast jólahaldi. Hópurinn fer á báða staði í söng og fræðslu.
Hvenær kemst hópurinn?
Dagskráin er í boði klukkan 9, 10 og 11.
19. nóvember til 17. desember
Fyrir hvern?
Elsti árgangur í leikskóla og 1. – 5. bekk grunnskóla eru velkomin í heimsókn.
Hvernig kemst ég?
Leið 6 stoppar fyrir framan safnið á heila tímanum og miðast heimsóknin við þann tíma sem tekur að fara úr og í strætó.
Leið 5 stoppar einnig fyrir framan safnið á hálfa tímanum.
Í Nonnahúsi verður opið jólahús og hægt að bíða þar eftir strætó eða tímanum sínum.
Minjasafnsgarðurinn er einnig tilvalinn áningastaður.
Hvernig tryggi ég mér tíma?
Bókað á minjasafnid@minjasafnid.is eða í síma 462-4162
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday