Jólin í Innbænum vekja verðskuldaða athygli þessa dagana. Hróður safnsins berst víða jafnvel til fjalla. Heyrst hefur að jólasveinarnir úr Dimmuborgum í Mývatnssveit ætli einhverjir að líta við á Minjasafninu á laugardaginn bæði til að líta á sýningarnar og syngja.
Nonnahús hefur verið fært í jólabúning og mun Þórgunnur Þórsdóttir, safnkennari, leiða fjölskyldustund í Nonnahúsi. Þangað hafa streymt börn síðustu vikurnar úr leik- og grunnskólum. Kannski að þau vilji líta í heimsókn með foreldra sína?
Á Minjasafninu eru nokkrir óþekktir jólasveinar og jólafjallið sem hægt er að gægjast inn í og skoða heimili Grýlu og Leppalúða og barnanna þeirra fjölmörgu. Í tónlistarsýningunni ætlar Eik Haraldsdóttir að leiða söngstund áður en jólasveinarnir birtast.
Fjölskyldustundin í Nonnahúsi hefst klukkan 13, söngstundin kl. 13:45 og jólasveinarnir líta við í kjölfarið.
Ekkert kostar inn á viðburðina sem Uppbyggingarsjóður SSNE styrkir.
Jólasýningin í Nonnahúsi og á Minjasafninu eru opnar daglega frá 13-16 – lokað 24. – 25. desember
Ókeypis er fyrir fullorðna í fylgd með börnum. – Annars er miðinn á 1000 kr og gildir út árið.
Munið árskortið.
The Yule Lads from Mývatn visit Akureyri Museum and Nonni‘s house to see the Christmas exhibitions.
The Yule Lads in Mývatn have heard great things about the Christmas exhibition at Nonni‘s house and Akureyri museum. They intend to come and see for themselves and join the Christmas singalong.
The event is free for all
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday