Í Gamla bænum mun eldur loga á hlóðum og krauma í feitinni á meðan laufabrauðið er skorið og steikt. Hangikjötsilmur læðist um híbýlin og lokkar án efa til sín fyrsta jólasveininn, Stekkjastaur, á leið hans til byggða. Jólalegur kvæðasöngur mun einnig óma um alla sveit. Aðgangseyrir er kr. 500- fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börnin.
Börn á öllum aldri geta reynt sig við að gera jólaskraut eins og tíðkaðist á þessum tíma og unnið verður að kertagerð. Skemmtilegur kvæðasöngur með jólalegum blæ mun fylla hvern krók og krima í Gamla bænum um leið og yndislegur ilmur hins rómaða kúmenkaffis leikur um vit gesta. Hægt verður að smakka á kræsingunum og jólamarkaðurinn verður í skálanum en þar kennir ýmissa grasa. Kaffi/Kakó og smákökur verða til sölu í Gamla Prestshúsinu. Það er Laufásshópurinn ásamt fjölda annarra velunnara Gamla bæjarins sem gerir það mögulegt að hægt er að upplifa jólaundirbúning gamla sveitasamfélagsins á þennan hátt.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Iðnaðarsafnið - opið daglega kl. 13-16
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Gamli bærinn í Laufási, Davíðshús, Leikfangahúsið, Smámunasafnið - lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa