Kímniskáldastund í Davíðshúsi
Áttu erfitt með að brosa? Fer hlátur þér illa? Ertu kannski ekkert fyrir ljóð? Þá er þetta líklega ekki viðburður fyrir þig.
Laugardaginn 15. nóvember kl. 15 flytja kímniskáldin Bragi Valdimar Skúlason, Vilhjálmur B. Bragason og Kristján Níels Jónsson eigin verk. Reyndar er Kristján Níels, Káinn, löngu hættur að koma fram enda á öðru tilverustigi. Ljóð lifa lengur en höfundar og verða flutt valin ljóð eftir Káinn, sem stundum verið nefndur sem fyrsta kímniskáldið.
Þú ert sveitar svívirðing,
sótugi Eldhús-raftur.
Aftan og framan, allt í kring
ekkert nema – kjaftur.
Þessi orð eiga ekki á neinn hátt við hin kímniskáldin Braga og Vilhjálm.
Bragi Valdimar Skúlason hefur samið fjölmarga söngtexta, kvæði og ljóð jafnt til heimilis- og einkanota og fyrir almannarými, ásamt því að þýða og staðfæra ólíklegustu söngleiki, lög og kveðskap úr ýmsum áttum.
Vilhjálmur B. Bragason er leikari, skáld og skemmtikraftur. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir að leika Ketil Skræk í Skugga Sveini hjá LA og hefur einnig gert garðinn frægan sem annar hluti gríndúettsins Vandræðaskálda. Þá hefur Villi samið urmul ljóða og laga, oftar en ekki með kómískum brag, meiningum, nú eða almennum svívirðingum.
En hver var Káinn?
Verið velkomin í stofuna í Davíðshúsi þar sem kerksni, hæðni og háð verða í hávegum höfð .
Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6
Hvenær: laugardaginn 15. nóvember kl. 15
Aðgangur: 1500 kr – ókeypis fyrir handhafa safnapassa
Tryggið ykkur sæti á minjasafnid@minjasafnid.is eða í síma 4624162
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Iðnaðarsafnið á Akureyri opið fimmtudag til sunnudags 13-17.
Leikfangahúsið, Davíðshús og Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Opið fyrir fyrirfram bókaða hópa á öllum söfnunum.
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Industrial Museum open Thursday - Saturday 13:00-17:00
Akureyri Toy Museum, Davíð writers museum, Museum, Museum of Things! open for groups.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday