Í tilefni þess að Karl-Werner Schulte afhendir nú síðustu kortin í Íslandskortasafnið sem varðveitt er á Akureyri verður boðið til sérstakrar dagskrár á Minjasafninu á Akureyri.
Dagskráin hefst kl. 17 og safnið verður opið til kl. 20. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar.
Karl-Werner fagnar þennan dag 80 ára afmæli sínu og vildi marka tímamótin með því að færa safninu þessa lokagjöf. Meðal þátttakenda í dagskránni verða Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands, og Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, sem tekur formlega við kortunum fyrir hönd Akureyrarbæjar. Þá kemur Wolfgang Crom frá Ríkisbókasafninu í Berlín sérstaklega til Akureyrar og fjallar um eintak af korti eftir Ortelius, sem stundum hefur verið kallað Guðbrandskortið.
Á sýningunni Land fyrir stafni gefur að líta einstök kort af Íslandi frá 16. öld. Þar er þýskt kort með safnnúmerið 200 sérstaklega áhugavert, en á því birtist elsta þekkta prentaða kortið af Íslandi, frá árinu 1507. Það er merkilegt að Ísland hafi ratað á prentað kort aðeins tæpum 60 árum eftir að prenttæknin ruddi sér til rúms í Evrópu — löngu áður en Guðbrandsbiblía kom út árið 1584.
Sýningin er unnin úr Íslandskortasafni Schulte, sem þýsku hjónin dr. Karl-Werner Schulte og dr. Gisela Schulte-Daxbök hafa fært Akureyrarbæ frá árinu 2014. Safnið telur nú 212 kort frá árunum 1507–1849, eftir marga helstu kortagerðarmenn Evrópu fyrri alda. Í safninu er að finna fjölmörg kort sem ekki er vitað til að séu varðveitt annars staðar, sem gerir það einstakt á heimsvísu.
Kortasafnið sýnir sögu vísindalegrar þekkingar á Íslandi og þróun evrópskrar kortagerðar í gegnum aldirnar. Um leið er það persónuleg saga hjóna sem tóku ástfóstri við Ísland og Akureyri. Það sem hófst sem ferðalag og áhugi varð að einstöku safni sem nú er varðveitt sem heild — öðrum til ánægju og gagns.
Gestir geta einnig skoðað aðrar sýningar safnsins, þar á meðal Í hers höndum, sem opnaði nýverið.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Iðnaðarsafnið - opið daglega kl. 13-16
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Gamli bærinn í Laufási opið daglega 11-17 - lokað hvítasunnudag.
Davíðshús, Leikfangahúsið, Smámunasafnið - lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa