Það jafnast ekkert á við fallegan flutning á góðu ljóði. Ljóðaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara ljóðastundir með leikaranum Arnari Jónssyni í stofu Davíðshúss laugardaginn 19. janúar kl. 17 og sunnudaginn 18. janúar kl. 17.
Arnar er einn af ástsælustu leikurum Íslands og hefur um árabil getið sér gott orð fyrir einstakan flutning á ljóðum. „Ljóðið ratar til sinna og það á sannarlega við um mig. Ljóðið fann mig mjög ungan. Tónlist tungumálsins endurómar í ljóðinu – auk hugsunar og tilfinninga.“ segir Arnar sem mun flytja ljóð sem á einhvern hátt hafa snert við honum í gegnum tíðina og segja sögur af því hvernig þau tengjast lífshlaupi hans.
Viðburðurinn er upphaf afmælisárs Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi sem fæddist fyrir 130 árum 21. janúar n.k. en Arnar opnaði einnig afmælishátíðina fyrir 30 árum.
Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6
Hvenær: 18.1 kl. 17 & 19.1. kl. 14. Húsið opnar 30 mín fyrir viðburð
Aðgangseyrir 2600 kr – ókeypis fyrir handhafa 7 safnapassa Minjasafnsins.
Platan Ljóðastund með Arnari verður til sölu á tilboðsverði.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Iðnaðarsafnið á Akureyri opið fimmtudag til sunnudags 13-17.
Leikfangahúsið, Davíðshús og Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Opið fyrir fyrirfram bókaða hópa á öllum söfnunum.
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Industrial Museum open Thursday - Saturday 13:00-17:00
Akureyri Toy Museum, Davíð writers museum, Museum, Museum of Things! open for groups.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday