Ljósmyndamaraþon – Barnamenningarhátíð
Áttu síma eða myndavél? Ert þú á aldrinum 6-15 ára?
Taktu þátt í að búa til sýningu á Minjasafninu á Akureyri með þínum ljósmyndum frá Akureyri á Barnamenningarhátíð í apríl. Myndirnar verða settar upp jafnóðum á sýningunni Akureyri bærinn við Pollinn. Þú færð a.m.k. eina mynd á sýninguna.
Sendu eina mynd úr hverjum flokki eða bara eina mynd úr því þema sem þér líst á. Hlökkum til að sjá og sýna myndirnar ykkar.
Þemun eru:
1. Uppáhaldsstaðurinn minn á Akureyri
2. Hverfið mitt
3. Sumardagurinn fyrsti
4. Litir
5. Búðarferð
Sendu myndina/myndirnar á leikur@minjasafnid.is ásamt nafninu þínu og aldri.
Dregið verður úr innsendum myndum – Poloroid myndavél í verðlaun.
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Laufás opið 11-17 í september
Iðnaðarsafnið opið 13-17 í september
Davíðshús lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30