Stjórn Gásakaupstaðar ses og Gásverjar hafa tekið þá ákvörðum í ljósi aðstæðna að aflýsa Miðaldadögum á Gásum í ár. Tár er á hvarmi margra Gásverja vegna þessarar ákvörðunar en fyrir marga þeirra, ekki síst þá yngstu, er þetta hápunktur sumarsins.
Síðustu ár hafa um 2000 manns árlega ferðast aftur til fortíðar þriðju helgina í júlí þegar þeir sækja Miðaldadaga á Gásum í Eyjafirði heim. Í ár verða menn að halda sig í samtímanum en fá tækifæri að ári til að upplifa verslunarstaðinn frá miðöldum á blómatíma hans. Þá verður á ný hægt að kynnast handverki og daglegum störfum frá miðöldum í sviðsmynd verslunarstaðarins á Gáseyrinni þar sem reykur úr pottum fyllir vit, Gásverjar bregða á leik og taktföst högg eldsmiða og sverðaglamur heyrast um allan fjörð.
Gásverjar allir hlakka til að ferðast aftur til fortíðar með ferðaþyrstum gestum helgina 16.-17. júlí 2021.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday