Myndir eftir nánast óþekktan ljósmyndara að nafni Árni Stefánsson frá Litla-dal koma nú fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti ásamt merkum frummyndum Tryggva Gunnarssonar sem teknar voru 1865 á Akureyri auk fyrstu myndanna sem teknar voru á Húsavík 1866. Afkastamestur ljósmyndaranna hvað varðar kynningu á sér og sínum verkum var Vigfús Sigurgeirsson. Hann hélt sýningu í Hamborg 1935, í höfuðborgum Norðurlandanna 1937 og í New York 1939. Hann gaf meðal annars út fyrstu ljósmyndabókina á Íslandi árið 1930. Frummyndir hans af sýningunum utanlands má nú sjá á Minjasafninu.
Fimmtungur ljósmyndaranna tuttugu sem fjallað er um á sýningunni eru konur. Sú þekktasta er Anna Schiöth annar kvenljósmyndari landsins. Hún rak ljósmyndastofu á Akureyri samfellt í 20 ár. Auk hennar voru þær Engel Jensen, Anna Magnúsdóttir og Guðrún Funk Rasmussen að störfum á þessu tímabili hér í bæ.
Hér er í fyrsta skipti komið saman yfirlit yfir ljósmyndun á Eyjafjarðarsvæðinu. Sýningin samanstendur af ljósmyndum úr ljósmyndasafni Minjasafnsins á Akureyri, sem er þriðja stærsta á landinu sinnar tegundar, auk ljósmynda fengnum að láni frá Þjóðminjasafni Íslands.
Minjasafnið verður opið hvítasunnudag og annan í hvítasunnu frá kl 13-16.
Sumaropnun hefst 1. júní og þá er safnið opið daglega frá kl 10-17.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás
Davíðshús opið þriðjudaga-laugardaga 13-17
Smámunasafnið opið 18. júní til 17. ágúst miðvikudag-sunnudags frá 13-17 .
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30