Myndbandasamkeppnin Siljan er komin í gang í sjötta sinn en markmið hennar er að efla lestraráhuga barna og unglinga. Keppnin er tilvalið verkefni fyrir fjarkennslu og heimaskóla því nemendur vinna sjálfstætt með bókmenntir, sköpun og tækni.
Barnabókasetur Íslands og Borgarbókasafnið í Reykjavík standa að keppninni í ár. Markmiðið er að auka áhuga barna og unglinga á bóklestri með því að beina sjónum þeirra að nýjum barnabókum og gera krakkana sjálfa að jákvæðum lestrarfyrirmyndum.
Allir grunnskólanemendur í 5.-10. bekk geta tekið þátt með því að senda inn 2-3 mínútna myndband um nýja barna- eða ungmennabók á íslensku. Þannig kallar Siljan 2020 eftir myndböndum um bækur gefnar út 2017-2019. Myndböndin úr fyrri keppnum eru aðgengileg á youtube og á leitarvef bókasafnanna, gegnir.is
Verkefnið er einfalt:
Velja bók - lesa bók - taka upp myndband á síma eða ipad (snúa þversum). Vista myndbandið á netinu (takmarka aðgengi). Senda slóðina á barnabokasetur@unak.is með upplýsingum um nafn, bekk og skóla höfunda og netfang forráðamanna.
Skilafrestur er til 30. apríl.

Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday