Söngur hrafnanna hlaut Grímuna í flokknum besta útvarpsleikritið 2014. Leikritið er eftir ungt leikskáld Árna Kristjánsson í leikstjórn Viðars Eggertssonar og hljóðmynd eftir Einar Sigurðsson. Leikritið fjallar um Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og heimsókn vina hans Páls Ísólfssonar og Árna Kristjánssonar píanóleikara í Bjarkarstíg 6. Verkið verður  endurflutt sunnudaginn 22. júní á Rás 1 kl. 13:00.     

Verkið var unnið í samvinnu Leikfélags Akureyrar, Útvarpsleikhúsins og Minjasafnsins á Akureyri fyrir hönd Davíðshúss og var frumflutt sem hljóðinnsetning í Davíðshúsi á 50 ára dánarafmæli Davíðs Stefánssonar 1. mars sl. og sýnt næstu helgar þar á eftir. Samstarfið var fróðlegt og gefandi fyrir safnafólk og ekki síst nýstárlegt. Einstaklega skemmtilegt að hafa verið hluti af þessu skapandi ferli. Verkið var frumflutt í útvarpi á páskadag en verður endurflutt á sunnudaginn á Rás 1 kl. 13:00.

„Hulið er margt að baki tímans tjalda.“ - Úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson

Raddir fortíðar leika um loftið í húsi við Bjarkarstíg á Akureyri. Þetta er hús Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Hús sem hefur staðið óbreytt í hálfa öld.

Árni Kristjánsson píanóleikari og Páll Ísólfsson tónskáld heimsækja Davíð til að fagna Gullna hliðinu, nýskrifuðu leikriti eftir skáldið. Þeir óttast að Davíð taki ekki vel í fréttirnar sem þeir þurfa að færa honum frá leikhúsinu fyrir sunnan.

En það eru annarlegri hlutir á seyði þetta kvöld og fleiri raddir á sveimi. Davíð tekst á við ástina sem aldrei gat orðið og einmanaleikann sem virtist alltaf koma aftur.

Söngur hrafnanna er hljóðverk þar sem öllum aðferðum útvarpsleikhússins beitt til að sýna Davíð og samferðafólk hans með listrænum og manneskjulegum hætti.

Persónur og leikendur:
Davíð: Ólafur Darri Ólafsson
Páll: Hannes Óli Ágústsson
Árni: Hilmir Jensson
Hulda: María Pálsdóttir
Gerda: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir

Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson

Leikstjóri: Viðar Eggertsson