Boðið er upp á sérsniðnar heimsóknir fyrir framhaldsskólahópa í samvinnu við framhaldsskólakennara. Við reynum eins og hægt er að koma til móts við óskir og ábendingar um viðfangsefni fyrir nemendur og tökum öllum hugmyndum með jákvæðum huga.
Dæmi um þau viðfangsefni sem boðið er upp á:
Hægt er að skoða sýningarnar Akureyri - bærinn við Pollinn og Eyjafjörður frá öndverðu.
Sýningarnar er hægt að sníða út frá áherslum sögu, viðskiptafræði, náttúrufræði, efnafræði eða hvað sem kennarar telja að gagnist þeim við að útskýra námsefni sitt. Á Minjasafninu er hægt að finna ótal dæmi sem varða samfélagið allt, söguna og umhverfið.
Einnig er hægt að skoða Minjasafnskirkjuna og Nonnahús með það fyrir augum að varpa ljósi á þéttbýlissamfélag sem var að verða til á Íslandi.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday