Þó myndir segi meira en 1000 orð er sagan á bakvið myndina ekki síður áhugaverð.
Myndir Gunnars V. Andréssonar, fréttaljósmyndara til 50 ára, fönguðu ekki aðeins tíðaranda þær greiptu sig í huga þjóðarinnar. Um nokkrar af þessum myndum ætla félagarnir Gunnar V. og Sigmundur Ernir Rúnarsson að spjalla í fyrirlestri á Minjasafninu á Akureyri í kjölfar opnunar sýningar á myndum Gunnars.
Þegar Gunnar hóf störf var vinstri umferð við lýði á Íslandi og náði hann myndum af því þegar hægri umferð var tekin upp 1969. Eftir það rak hvern atburðinn á fætur öðrum, tónleikar hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Led Zeppelin í Laugardalshöll 1970 og svo ári síðar heimkoma fyrstu handritanna í Reykjavíkurhöfn. Gunnar var mættur til Vestmannaeyja fljótlega eftir að hóf að gjósa á Heimaey 1973 og komst í návígi við fleiri náttúruhamfarir – eftirmála snjóflóðanna á Flateyri og í Súðavík – atburði sem reyndu á íslenska þjóðarsál. Heimssögulegir viðburðir fóru heldur ekki framhjá honum eins og kjör Vigdísar fyrsta þjóðkjörna kvenforseta í heimi 1980 og leiðtogafundurinn í Höfða 1986. Allt þetta var vandlega skrásett af Gunnari.
Fyrirlesturinn byggir á bók þeirra félaga Spegill þjóðar - fréttamyndir í 50 ár og sagan á bak við þær. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Ljósmyndafyrirlesturinn hefst kl. 17
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð Minjasafnsins á Akureyri, Akureyrarakademíunnar og Sagnfræðingafélags Íslands.
Næstu fyrirlestrar eru:
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Iðnaðarsafnið - opið daglega kl. 13-16
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Gamli bærinn í Laufási, Davíðshús, Leikfangahúsið, Smámunasafnið - lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa