Hvar keyptir þú fermingarfötin, leðurjakkann, bókina eða trúlofunarhringinn?

Margir eiga minningar sem tengjast verslunum sem sumar hverjar eru horfnar. Á sýningunni Hér stóð verzlun gefur að líta ljósmyndir frá ýmsum sérverslunum frá síðustu áratugum á Akureyri. Sýningin er framhald sýningarinnar Hér stóð búð sem naut gríðarlegra vinsælda á síðasta ári. Þar gaf að líta myndir úr kjörbúðum og matvöruverslunum.
 
Í tengslum við sýninguna hefur einnig verið opnuð nýjasta búð bæjarins, sérvöruverslunin Tízkan, þar sem kynslóðir geta sameinast í búðarleik.