Á jólunum gerir fólk sér glaðan dag og grípur í spil af einu eða öðru tagi. En spil og leikir um jólahátíðina hafa ekki alltaf verið sjálfsögð.

Á 17. og 18. öld amaðist kirkju- og konungsvaldið við öllum skemmtunum. Í  konunglegri tilskipun frá 1746 um helgidagahald er bannað allt „tafl, leikir, hlaup, spil, gárunga-hjal og skemmtan … að viðurlögðu straffi sem helgidagsbrot áskilur.“

Barnalærdómskver frá sama tíma er ekkert mildara og áminnir að vanhelga ekki hvíldardaginn með „syndsamlegum skemmtunum, svo sem dansi, spilum og öðrum apaskap.“

Léttúðin náði smám saman heljartökum á sálum landsmanna. Þó var ekki tilhlýðilegt að spila fyrr en á annan í jólum annars gat skrattinn birtst sem annar tveggja tígulkónga.

Heimilisspilið Vogun vinnur, vogun tapar var byggt á geisi vinsælum útvarpsþætti og hefur eflaust ratað undir jólatréð 1959 enda auglýst sem „samkvæmisspil fyrir 12-100 ára.“  

Playing cards or games is a big part of family Christmas. This was frowned upon and even punishable by law in the 17. and 18. century. Even in the 19. century and early 20th people did not play cards until the third day of Christmas fearful of evoking the devil.  Nothing Risked, Nothing Gained is a boardgame from 1958 an Icelandic trivia game, based on a popular radio show. There was no TV in Iceland until 1966!