Það eru fáir dagar sem setja jafn mikinn svip á bæjarlífið á Akureyri og öskudagur. Þannig hefur það líka lengi verið. Börnin vakna snemma klæðast skrautlegum búningum og mynda hvert öskudagsliðið af öðru. Liðin arka um bæinn og heimsækja fyrirtæki, verslanir og stofnanir þar sem þau bjóða fram söngva í skiptum fyrir góðgæti. Flestir leggja metnað sinn í lagaval og fagran söng og af þeim sökum hafa farið fram margar fjörlegar æfingar dagana á undan. Uppskera þeirra verður einnig mjög ríkuleg þó deila megi um næringarfræðilegt gildi hennar. Eitt er víst að í febrúar eru nammidagar einum fleiri en venjulega.
Þessum áhugaverða hátíðisdegi barna gerum við skil í örsýningu.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús er opið alla daga kl. 13-16
Iðnaðarsafnið opið alla daga kl. 13-16
Gamli bærinn í Laufási lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa
Davíðshús lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Leikfangahúsið lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Smámunasafnið lokað nema fyrir skólahópa og fyrirfram bókaða hópa
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30