Heimildamynd eftir Petter Amandus Tafjörd sem fjallar um veru norsku skíðaherdeildarinnar á Íslandi og Jan Mayen í seinni heimsstyrjöldinni. Fjölmargir norskir hermenn voru staðsettir á Íslandi á stríðsárunum. Auk þess að verja landið gegn árásum var hlutverk þeirra að þjálfa enska, bandaríska og kanadíska hermenn í vetrarhernaði.