Hvað gerðist á bak við tjöldin þegar landhelgin var færð út í 50 sjómílur? Hvernig rýmir veruleikinn fyrir sýn okkar á fortíðina?

Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Íslands, kynnir nýja bók sína um þorskastríð og landhelgismál á Minjasafninu á Akureyri, laugardaginn 3. október kl. 13. Sögustund fyrir forvitið og fróðleiksfúst fólk.

Vald hinna veiku er efnismikið rit og ríkulega myndskreytt. Frásögnin er æsileg og litríkir kappar eigast við. Á hafi úti beita liðsmenn Landhelgisgæslunnar togvíraklippum af miklum móð, breskir togarajaxlar bölva þeim í sand og ösku og freigátukapteinar reyna að verja þessa landa sína en fá ekki að beita öllu afli gegn litla Íslandi. Í landi mega sáttfúsir Íslendingar sín lítils gegn þeim sem vilja berjast fyrir rétti okkar með þeim rökum að samningar séu svik og málamiðlanir aumingjalegt undanhald. Í Lundúnum og víðar blöskrar mörgum svo að íslenskir valdhafar virði ekki alþjóðalög, séu þrjóskan uppmáluð og hafi í hvers kyns hótunum. Sjaldan hefur eins mikið gengið á í samtímasögu okkar og þessi átakaár.

Á viðburðinum verður ritið til sölu á sérstöku tilboðsverði og höfundur áritar eintök sé þess óskað.

 

Hvar: Minjasafninu á Akureyri, Aðalstræti 58

Hvenær: laugardaginn 3. október

Klukkan: 13:00

Ókeypis aðgangur