Árið 1958 lögðu æskuvinirnir Sveinn Bjarnason og Rúnar Einarsson af stað yfir Sprengisand á reiðhjólum. Þeir ætluðu sér að verða fyrstir Íslendinga til að hjóla yfir hálendið. Það sem hófst sem metnaðarfull áskorun breyttist fljótt í gríðarlega þrekraun.

Leikstjóri myndarinnar, Kristófer Óli Birkisson, barnabarn Sveins, skýrir frá gerð myndarinnar og sýnir dagbók og ljósmyndir úr ferðinni.  Tónlist í myndinni er eftir Markús Björnsson og Björn Erlingsson