Mikil menningar- og samfélagsverðmæti urðu eldinum að bráð þegar eitt elsta hús í Grímsey, Miðgarðakirkja, brann. Kirkjan var mikilvægur hlekkur í samfélaginu á gleði og sorgarstundum auk þess sem hún var mikilvægur áfangastaður fyrir gesti af meginlandinu.
Miðgarðakirkja var reist árið 1867. Árni Hallgrímsson (1832-1917) frá Garðsá í Eyjafirði var yfirsmiður hennar. Kirkjunni var breytt umtalsvert árið 1932 þegar bætt var við einfalt kirkjuhúsið forkirkju með háum turni og kór. Til hafði staðið að steinsteypt kirkja leysti gömlu kirkjuna af hólmi. Guðjón Samúelsson lagði fram hugmyndir árið 1925 að nýrri kirkju og báru endurbæturnar sem ráðist var í talsverðan svip af þeirri tillögu. Helgi Ólafsson smiður og bóndi á Borgum í Grímsey sá um endurbæturnar og fórst afar vel úr hendi að fella saman gamla kirkjuhúsið og nýbyggingarnar. Frekari framkvæmdir fóru fram á kirkjunni árið 1956 og var hún endurvígð 12. ágúst 1956 af Ásmundi Guðmundssyni biskup.
Nokkrir góðir gripir glötuðust í eldinum. Predikunarstólinn frá 1867, altaristafla frá 1879 eftir Arngrím Gíslason málara, eftirmynd af kvöldmáltíðarmynd Leonardo da Vinci; fagurlega útskorinn skírnarfontur eftir Einar Einarsson frá 1958, og tvær fagrar söngtöflur eftir hann svo fáeinir gripir séu tilteknir.
Þá er horfið handbragð þeirra sem reistu kirkjuna og máluðu.
Myndir úr Grímseyjarsafni Helga Daníelssonar og Friðþjófs Helgasonar er að finna hér Miðgarðakirkja í Grímsey
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday