Minjasafnið á Akureyri
  • Hafa samband
  • ENGLISH
  • Minjasafnið
    • Starfsfólk
    • Opnunartími
    • Hafa samband
    • Sýningar
    • Fræðsla
      • Safnfræðsla fyrir skólastig
      • Safnfræðsla fyrir leikskóla
    • Bóka heimsókn
    • Myndir
    • Starfsemi
    • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
    • Minjasafnskirkjan
    • Minjasafnsgarðurinn
    • Gjaldskrá
    • Gjaldskrá ljósmyndir
    • Stoðvinir
    • Stjórn Minjasafnsins
  • Laufás
  • Viðburðir
  • Fréttir
  • Opnunartímar
Forsíða / Minjasafnið / Myndir / Akureyri í 150 ár 1862-2012

Akureyri í 150 ár 1862-2012

  • 105 stk.
  • 21.04.2020
Ljósmyndir frá hverju ári frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi 1862 til ársins 2012.
73. Prúðbúinn maður á Gleráreyrum, um 1950. Jakob Thorarensen. Braggi tv. var “Öl og gos” gosdrykkjaverksmiðjan, austan við verksmiðjur SÍS. Grjótmulningsvél fyrir miðju, þá Baldurshagi, og Brekkugata 32, th. eru kofar sem voru notaðir sem hesthús. Ljósmynd Ari Leó Björnsson.
72. Skíðaskálinn Ásgarður, um 1950, sem stóð nokkru sunnan við Skíðahótelið. Þennan skála reistu nemendur Gagnfræðaskólans og Iðnskólans en árið 1944 keyptu þeir í sameiningu gamlan hermannaskála og fluttu hann á upp í fjall og reistu hann aftur undir stjórn Hermanns Stefánssonar leikfimikennara. Byggt var inngangur framan á braggann og torfveggir voru hlaðnir meðfram hliðum beggja til húsanna til einangrunar. Það kom fyrir að bragginn færi nánast á kaf í snjó. Þessi skíðaskáli var aflagður þegar Skíðahótelið var tekið í notkun.  Ljósmynd Kristján Hallgrímsson.
70. Karlakórinn Geysir á leið með Douglas DC-4 flugvél til Keflavíkur,  í maí 1962. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
71. Ungdómurinn að spjalli við eldri kynslóðina, á sjöunda áratugnum. Takið eftir barnapíunum sem eru með ungbörnin í barnavögnunum. Í baksýn er hús sr. Péturs Sigurgeirssonar sem stendur á horni Byggðavegar og Hamarstígs. Ljósmynd Erlingur Davíðsson.
69. Dansað á Ráðhústorgi um 1950. Nokkuð algengt var að almenningur dansaði á torginu. Til vinstri á myndinni sést Strandgata 1 þar sem Landsbankinn stendur í dag.
68. Súkkulaðiverksmiðjan Linda var stofnuð árið 1949 af Eyþóri Tómassyni en hann nefndi verksmiðjuna eftir dóttur sinni. Upphaflega var verksmiðjan á efri hæð hússins við Hólabraut 16 en árið 1961 fluttist hún í nýbyggt húsið við Hvannavelli 14. Lindubuffin urðu þekkt um allt land og Linda var nefnd í sömu andrá og KEA, Amaró og SíS í þekktum dægurlagatexta sem hljómsveit Ingimars Eydals söng 1968. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
67. Pissubíllinn á leið upp Þingvallastræti. Ásdís Gunnlaugsdóttir hleypur á eftir bílnum um 1963. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
66. Í ágúst 1955 var Geislagatan lögð inn á Ráðhústorg. Samkvæmt fyrsta skipulagi bæjarins árið 1927 átti Geislagatan að liggja eins og geisli út frá Ráðhústorgi og út á bæjarvöllin, Eiðsvöllinn. Við hana á áttu að rísa verslanir. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
65. Snyrtiborð í vinnslusal Útgerðafélags Akureyringa 11. Júní 1991. Ljósmynd Golli.
64. Gruman Goose flugbátur Flugfélags Íslands ekur upp rampinn að flugplaninu við Strandgötu 35 um 1950. Pollurinn á Akureyri var notaður til flugtaka og lendinga af öllum gerðum sjóflugvéla.  Áhorfendur eru fullnærri skrúfublöðum flugvélarinnar. Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
63. Skíðamót í Hlíðarfjalli árið 1967. Öll mannvirkin á þessari mynd eru nú horfin. Skíðalyftan er lengst til hægri. Turninn fyrir miðri mynd hét Strompurinn og var fyrsta mannvirkið sem reis upp á Stromp hæð. Húsið vinstra megin hét Strýta og er nýrisið en því var skipt út fyrir núverandi byggingu árið 2000. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
62. Búðargil um 1970. Greinilega má sjá gömlu kartöflugarða Akureyringa en þar hófst ræktun um aldamótin 1800. Lengst til vinstri í miðri hlíðinni sjást leifar af fyrstu vatnsveitu bæjarins frá 1903. Þá var í fyrsta skipti leitt vatn inn í fjölda húsa með röri. Hvíta kassalaga húsið fyrir miðri mynd, Lækjargata 16, er nú horfið. Lengst til hægri á brekkubrúninni er hvítt hús, kallað kastalinn, þar bjó lengi „Tóbaks-Steini“. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
60. Lágfreyðandi Vex úr Efnaverksmiðjunni Sjöfn árið 1966. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
61. Niðursuðudósirnar með nautasmásteikunum urðu óneitanlega fallegri eftir að konurnar höfðu límt miðana á þær árið 1966. Helstu tegundir Kjötiðnaðarstöðvar KEA voru: kjötbúðingur, bæjarbjúgu, steikt lifur, kindakjöt (soðið), nautakjöt (soðið, smásteik, saxbauti) ennfremur kindakæfa og lifrarkæfa. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
59. Appelsín framleitt í Efnagerðinni Flóru, sem var í Kaupangsgili, nú Listagil. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
58. Landsbankahúsið við Ráðhústorg árið 1967. Bygging þess hófst árið 1949 en vegna skömmtunarvalds ríkisins var ekki leyfi að reisa nema eina hæð á ári svo húsið var ekki vígt fyrr en 1954. Þá fluttust skrifstofur bæjarins á aðra hæð hússins og í sal á rishæðinni var fundarsalur bæjarstjórnar. Það má því segja að á þessum árum hafi verið ráðhús við Ráðhústorg. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
57. Akureyri árið 1962. Ljósmynd Pálmi Stefánsson.
55b-h2-401
56. Fyrsta litmyndin af Akureyri árið 1943. Þarna sést í gaflinn á Sýslumannshúsinu og Barnaskólanum sem að þá hýsti Amtsbókasafnið og bókavörð þess Davíð Stefánsson skáld. . Á hlið skipanna á Pollinum er málaður íslenski fáninn niður við sjávarrönd til að verjast árásum þýskra kafbáta í árum seinni heimstyrjaldarinnar.  Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
55. Húsaröðin við Hafnarstræti 19-41 í sveigðri línu meðfram fjörunni og stórhýsin á Barðsnefi. Húsin eru mikið skreytt í tilefni af komu Friðriks VIII. konungs árið 1907. Um tíma virtist sem á Barðsnefi yrði ný þungamiðja bæjarins. Þar risu stærstu húsin, Barnaskólinn árið 1900 og Samkomuhúsið árið 1906. Norðan við Samkomuhúsið í brekkunni stóðu svo Bogahúsið (reist 1898 og 1902) og Hafnarstræti 66 (1897). Bogahúsið var rifið árið 1980 en Hafnarstræti 66 brann árið 1952. Á Torfunefsbryggu má sjá glytta í hliðið sem reist var vegna landgöngu konungs. Ljósmynd Hallgímur Einarsson.
54. Aðalstræti, Fjaran um 1880. Litlu húsið vinstra megin eru með elstu húsum á Akureyri, byggð um og fyrir 1850. Árið 1864 fengu bæjarbúa sína fyrstu kirkju og stóð hún þar sem Minjasafnskirkjan stendur nú, byggð 1863 og rifin 1943. Ljósmyndari Anna Schiöth.
53. Hafnarstræti 23, 28. ágúst 1882. Húsið byggði ein merkasta og umtalaðasta kona sinnar samtíðar á Akureyri, Vilhelmina Lever. Hún rak verslun í húsinu en síðar keypti Höepfner kaupmaður það og stofnaði þar fyrsta bakaríið í bænum árið 1867. Anna Schiöth tók myndina af húsinu og maður hennar, Hendrik Schiöth bakari stendur við húsið og börnin þeirra sitja fyrir framan. Myndin er tekin í lok ágúst og þetta ár var hafís í Eyjafirði allt sumarið sem olli hungursneyð hér. Húsið brann 1903. Ljósmynd  Anna Schiöth.
52. Akureyri um 1880. Reykur stígur upp frá skorsteinum. Oddur Thorarensen apótekari stendur í dyrum á Apótekinu, sem nú er Aðalstræti 4.
104. Beðið við Bögglageymsluna í Kaupvangsgili, um 1964. Mjólkurbílinn A- ? er handað við hornið. Ef til till hefur bílstjórinn brugðið sér inn í bögglageymsluna til að taka kassa með matvörum út í nærliggjandi sveitir. Algengt var að viðskiptavinir KEA hringdu inn í matvörudeild KEA og pöntuðu vörur sem þeir fengu svo heimsendar með mjólkurbílnum eða jafnvel Dalvíkurrútunni. Hvíta stjóra húsið er gistiheimið Caroline Rest sem amerikaninn George Schrader byggði 1913-1914. Á þessu sérstæða gistiheimili stóð líka hestum til boða gisting en í hesthúshlutanum var hægt að hýsa 130 hesta við stall. Húsið var rifið 1979. Ljósmynd Erlingur Davíðsson.
51.  Árið 2005 var felld niður gjaldskilda í bifreiðastæða á Akureyri, Þóra Ákadóttir forseti bæjarstjórnar sagar í sundur stöðumæli í miðbæ Akureyrar og fær aðstoð Ómars Ólafssonar starfsmanns Akureyrarbæjar. Ljósmynd Kristján Kristjánsson.
48. Fyrstu Andrésar Andarleikarnir voru haldnir árið 1976. Þá tóku 148 keppendur þátt í mótinu en eru  nú á bilinu 750-800. Myndin er tekin í Hlíðarfjalli árið 2011. Ljósmynd Hörður Geirsson.
47. N1 fótboltamótið árið 2010 sem haldið hefur verið á hverju ári á svæði KA frá 1986. Ljósmynd Hörður Geirsson.
46. Þann 9. febrúar 2006 var eitt af kennileitum Akureyrar í gegnum tíðina, græni KEA tígullinn, tekið niður af höfuðstöðvum KEA við Hafnarstræti. Þá hafði það merki þjónað KEA í um 75 ár. Þegar umsvif KEA voru sem mest í bænum höfðu gárungarnir á orði að Akureyrarkirkja væri eina húsið sem KEA-merkið væri ekki á! Ljósmynd Skapti Hallgrímsson.
45. Árið 2007 fagnaði Háskólinn á Akureyri 20 ára starfsafmæli sínu. Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor flytur hér hátíðarræðu í afmælissamsæti skólans sem haldið var í Íþróttahöllinni. Þegar skólinn hóf starfsemi sína árið 1987 voru 31 nemendur skráðir  til náms í skólann og starfsmenn fjórir en veturinn 2011-2012 voru þeir orðnir um 1500 talsins. Ljósmynd Skapti Hallgrímsson.
44. Gosbrunnur í Lystigarðinum á Akureyri, 11 júlí 2006. Gosbrunnurinn var gerður 1959-1960. Ljósmynd Kristján Kristjánsson.
Fyrri 1 2 3 4 Næsta
  • Starfsfólk
  • Opnunartími
  • Hafa samband
  • Sýningar
  • Fræðsla
    • Safnfræðsla fyrir skólastig
    • Safnfræðsla fyrir leikskóla
  • Bóka heimsókn
  • Myndir
  • Starfsemi
  • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
  • Minjasafnskirkjan
  • Minjasafnsgarðurinn
  • Gjaldskrá
  • Gjaldskrá ljósmyndir
  • Stoðvinir
  • Stjórn Minjasafnsins
  • Aðalstræti 58
  • 600 Akureyri
  • Sími 462 4162
  • minjasafnid@minjasafnid.is

Opnunartími:daglega 11-17

Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás

Davíðshús opið þriðjudaga-laugardaga 13-17

Smámunasafnið opið  18. júní til 17. ágúst miðvikudag-sunnudags frá 13-17 .

Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30