Minjasafnið á Akureyri
  • Hafa samband
  • ENGLISH
  • Minjasafnið
    • Starfsfólk
    • Opnunartími
    • Hafa samband
    • Sýningar
    • Fræðsla
      • Safnfræðsla fyrir skólastig
      • Safnfræðsla fyrir leikskóla
    • Bóka heimsókn
    • Myndir
    • Starfsemi
    • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
    • Minjasafnskirkjan
    • Minjasafnsgarðurinn
    • Gjaldskrá
    • Gjaldskrá ljósmyndir
    • Stoðvinir
    • Stjórn Minjasafnsins
  • Laufás
  • Viðburðir
  • Fréttir
  • Opnunartímar
Forsíða / Minjasafnið / Myndir / Akureyri í 150 ár 1862-2012

Akureyri í 150 ár 1862-2012

  • 105 stk.
  • 21.04.2020
Ljósmyndir frá hverju ári frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi 1862 til ársins 2012.
14. Séð yfir nýbyggingar við Áshlíð á Akureyri árið ? Ljósmynd Erlingur Davíðsson.
13. Horft frá Hamarkotsklöppum yfir iðnaðarsvæðið á Gleráreyrum yfir í Glerárþorp um 1946. Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
12. Kjötborðið í Hrísalundi í júlí árið 1980. Ljósmynd úr safni Dags.
11. Barnaskóli Akureyrar, sem sumir sögðu að héti Barnaskóli Íslands. Hann var tekinn í notkun árið 1930. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
10. Lengi vel eimdi eftir bóndanum í Akureyringum enda flestir að flytja beint úr sveitinni á mölina. Mjög algengt var að eiga  hæns, nokkrar kindur eða jafnvel eina kú til þess að tryggja heimilinu matföng. Hér er rakað saman í sátu á túni sem var neðan Byggðavegar. Talið frá vinstri, Gísli Heimir Sigurðsson, Sigurður A. Sigurðsson, óþekktur, Árni Sigurðsson og Kristján Þórhallsson. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
9. Krakkar að leik á móts við Langholt. Takið eftir uppblásnu leikföngunum þeirra en þetta eru plastpokar úr 10 lítra mjólkurkössunum sem fengust lengi í verslunum KEA. Ljósmynd Erlingur Davíðsson.
7. Sumardagurinn fyrsti í “Sóðavík” árið 1922. Víkin í Oddeyrarbótinni þar sem nú er Ráðhústorg var forðum kölluð Sóðavík því bæjarbúar óðu forina upp í ökkla og víkin þornaði ekki nema í allra mestu þurrkatíð. Lengi vel gekk sjórinn upp undir söluturninn sem Guðbjörn Björnsson byggði árið 1915 fyrir Jóhann Ragúelsson kaupmann. Turninn var síðar fluttur upp á hornið á Munkaþverárstræti og Hamarstígs. Ljósmynd Hallgímur Einarsson.
8. Hver man ekki eftir glaðlynda ítalska ávaxtakaupmanninum Cosimo og verslun hans á Ráðhústorgi?  Þar seldi hann gestum og gangandi úrval að grænmeti og ávöxtum frá 1982-1984 og aftur árið 1989. Cosimo kynnti fyrir Akureyringum ýmsa framandi ávexti. Eitt sinn kom bóndi til Cosimo og spekuleraði lengi í kiwi ávöxtunum og sagði svo “Heyrðu, frá hvaða landi koma þessar loðnu kartöflur eiginlega?”. Hér er Signý Stefánsdóttir að kanna úrvalið hjá Cosmio 7.júlí 1989. Ljósmyndari Kristján Logason.
6. Kaupvangstorg eða Kaupfélagshornið um 1925. Húsið til vinstri er svokallað Dúahús en það var fyrsta íbúðarhúsið sem reis í miðbænum árið 1894. Það var rifið þegar stórhýsi KEA reis 1930. Grófargilslækurinn rann niður sunnan við húsið og á honum var brú. Við brúna stendur “Gullkistan”  og á henni stóð “Gefið svo mun yður gefast” . Gullkistan var söfnunarbaukur og í hana áttu vegfarendur að gefa fáeina aura til styrkjar ekkjum og munaðarlausum börnum. Ljósmynd Jón & Vigfús.
5. Götur á Akureyri voru ekki malbikaðar fyrr en ?. Vinstri umferð er enn í gangi. Húsið á hægri hönd er Þingvallastræti 1? Þessi götumynd er nú horfin. Hægra megin er Þingvallastræti 2 sem nú er horfið eins og húsið Garður sem er fyrir miðri mynd. Trén sem standa enn í gilinu stóðu upphaflega sunnan við Garð. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
4. Landsbankinn.  Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
3. Saltfisksþurrkstæði á horni Aðalstrætis og Hafnarstrætis árið 1919. Árið 1912 brunnu öll hús sem stóðu á þessu svæði en mörg þeirra voru með elstu húsum á Akureyri. Enn það dag í dag er hluti af þessu svæði óbyggt. Stórhýsin Tuliníusarhús byggt 1902(t.h.) og Höepfnershús byggt 1911 (t.v.) voru stærstu verslunar- og íbúðarhúsin á gamla verslunarstaðnum á hinni upphaflegu gömlu Akureyri. Ljósmynd Hallgrímur Einarsson.
2. Lýsisbræðsla á Oddeyri árið 1920. Fyrst var lýsisbræðsla byggt á Torfunefi árið 1866 en var flutt þaðan árið 1893. Þetta var í raun ein fyrsta verksmiðjan á Akureyri. Þarna stóðu karlarnir við risastóra járnpotta og bræddu hákarlalifrina niður í lýsi sem svo var sett á 120 lítra eikartunnur sem komu erlendis frá. Pottarnir voru kynntir með kolum og var það ærin starfi að moka kolum stanslaust til að kynda undir pottunum.
30. Ungir sjómenn um borð í Svalbak, síðutogara Útgerðafélags Akureyringa. Ljósmynd Bergur Sveinsson.
1. Sendill frá Smjölíkisgerðinni Akra, um 1960. Mörg fyrirtæki buðu upp á þá þjónustu að senda varning heim til fólks. Ungir hraustir piltar þeyttumst um bæinn með margvíslegan varning framan á bögglaberanum sem var framan á hjólinu. Bak við þennan sendil sést í húsið Garð sem stóð í brekkunni neðan við Frímúrarahúsið. Það var rifið 1967 og hafði þá verið í eigu Akureyrar frá 1955. Ljósmynd Erlingur Davíðsson.
Fyrri 1 2 3 4 Næsta
  • Starfsfólk
  • Opnunartími
  • Hafa samband
  • Sýningar
  • Fræðsla
    • Safnfræðsla fyrir skólastig
    • Safnfræðsla fyrir leikskóla
  • Bóka heimsókn
  • Myndir
  • Starfsemi
  • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
  • Minjasafnskirkjan
  • Minjasafnsgarðurinn
  • Gjaldskrá
  • Gjaldskrá ljósmyndir
  • Stoðvinir
  • Stjórn Minjasafnsins
  • Aðalstræti 58
  • 600 Akureyri
  • Sími 462 4162
  • minjasafnid@minjasafnid.is

Opnunartími:daglega 11-17

Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás

Davíðshús opið þriðjudaga-laugardaga 13-17

Smámunasafnið opið  18. júní til 17. ágúst miðvikudag-sunnudags frá 13-17 .

Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30