Minjasafnið á Akureyri
  • Hafa samband
  • ENGLISH
  • Minjasafnið
    • Starfsfólk
    • Opnunartími
    • Hafa samband
    • Sýningar
    • Fræðsla
      • Safnfræðsla fyrir skólastig
      • Safnfræðsla fyrir leikskóla
    • Bóka heimsókn
    • Myndir
    • Starfsemi
    • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
    • Minjasafnskirkjan
    • Minjasafnsgarðurinn
    • Gjaldskrá
    • Gjaldskrá ljósmyndir
    • Stoðvinir
    • Stjórn Minjasafnsins
  • Laufás
  • Viðburðir
  • Fréttir
  • Opnunartímar
Forsíða / Minjasafnið / Myndir / Akureyri í 150 ár 1862-2012

Akureyri í 150 ár 1862-2012

  • 105 stk.
  • 21.04.2020
Ljósmyndir frá hverju ári frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi 1862 til ársins 2012.
43. Svokallaður Sjallareitur, þ.e. svæðið í kringum Sjallann á Akureyri og láglægar lóðir, hefur í gegnum árin verið viðfangsefni skipulagsyfirvalda. Á árunum 2004 og 2005 voru uppi stórhuga hugmyndir að byggja þar “Manhattan Norðursins” sem samanstóð af 2ja hæða verslunar og bílageymsluhúsi og ofan á það þremur 14 hæða íbúðarturnum sem þá hefðu orðið hæstu íbúðarhús landsins. Sigurður Sigurðsson eigandi SS-Byggis horfir yfir svæðið. Ljósmynd Kristján Kristjánsson.
42. Þorsteinn Pétursson lögreglumaður eða Steini P. hefur í gegnum árin frætt kynslóðir af bæjarbúum um umferðaröryggismál. Hér er hann í essinu sínu að miðla fróðleik til barna á Glerártorgi árið 2008. Ljósmynd Kristján Kristjánsson.
41. Nýjasta íbúabyggð bæjarins heitir Naustahverfi árið 2010. Fyrstu íbúarnir fluttu í hverfið í Vaðlatún 7 2003. Fyrsta byggingin sem var tilbúin í hverfinu var leikskólinn Naustatjörn, gul lágreist bygging. Við hlið hans stendur Naustaskóli. Ljósmynd Hörður Geirsson.
40. Nýstúdentar úr Menntaskólanum að marsera á Ráðhústorgi á miðnætti á 17. júní 2010 en það er einn af rótgrónum siðum í kringum útskriftina. M.A. er eini framhaldsskólinn á landinu sem enn heldur í þá hefð að útskrifa stúdenta á þjóðhátíðardaginn. Þeir setja sterkan svip á hátíðarhöldin á Akureyri og hafa gert það í áratugi. Ljósmynd Kristján Kristjánsson.
39. Horft upp Strandgötu í ágúst árið 2011. Ljósmynd Hörður Geirsson.
38. Glerártorg árið 2010. Þungamiðja verslunar hefur færst í gegnum tíðina til norðurs, frá elsta hluta bæjarins á Gleráreyrar.  Ljósmynd Hörður Geirsson.
36. Biðröð fyrir utan Nýja bíó þar sem ungir bæjarbúar bíða þess að komast á KA skemmtun árið 1955. Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
37. Menningarhúsið Hof árið 2011, stendur við þjóðveg nr.1. Neðst á myndinni má sjá elsta hluta Torfunefsbryggju sem var byggð 1907.  Ljósmynd Hörður Geirsson.
35. KA menn fagna Íslandsmeistaratitli í fótbolta í Sjallanum1989. Þórsarinn Bjarni Hafþór Helgason söng eigið lag og texta „Áfram KA-menn“ og hafði sér til aðstoðar þjálfara liðsins Guðjón Þórðarson. Um undirleik sá hljómsveitin Skriðjöklar. Ljósmynd úr safni Dags.
34. Börn á leik við Pálmholt. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
33. Barnaheimilið Pálmholt var tekið í notkun 1950. Þá var það staðsett töluvert fyrir ofan byggðina í kaupstaðnum. Það starfaði í þrjá mánuði yfir sumartímann og mánaðargjaldið var 200 kr. Álengdar sést í býlin, talin frá vinstri: Setberg, Skarð, Grafarholt og Bergland. Tvö seinni húsið eru nú horfin er Setberg og Skarð standa við Hamragerði í dag. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
32. Guðrún Kristjánsdóttir starfsmaður í Járn og glervörudeild KEA árið 1966. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
31. Timburflokkun á lóð Byggingadeildar KEA árið 1966. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
30. Ungir sjómenn um borð í Svalbak, síðutogara Útgerðafélags Akureyringa. Ljósmynd Bergur Sveinsson.
29. Horft yfir Oddeyri árið 1905 þar varð stórbruni 18. október árið 1906 þegar brunnu sjö hús og 75 manns urðu heimilislaus. Bæjaryfirvöld í Álasundi sendu í kjölfarið tvö hús til að aðstoða bæjarbúa. Þar sem sjóinn ber að landi hét Hofsbót en er í dag Ráðhústorgið. Ljósmynd Magnús Ólafsson.
28. Lækjargata í Búðargili um 1950. Ljósmynd Bára Aðalsteinsdóttir.
27. Jón Sólnes forseti bæjarstjórnar slær upphafshögg á golfvelli Akureyringa þar sem nú er elliheimil bæjarins. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson.
49. Kristján Jóhannsson stórsöngvari fagnar hér áhorfendum á vígslutónleikum í Hofi árið 2010. Ljósmynd Skapti Hallgrímsson.
26. Stórverslun Amaro í byggingu árið 1959. Grjóthörð móhellan var losuð með lofthömrum áður en víragrafa flutti lausan jarðveginn á vörubílspallinn. Ungur drengur fylgist spenntur með ofan af brúninni. Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
25. Börn að leik á leikvellinum við Helgamagrastræti, árið 1956. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
24. Eiðsvöllur á Oddeyri. Eiðsvöllurinn var upphaflega settur inn á Aðalskipulag Akureyrar árið 1927 og átti að vera myndarlegur bæjarvöllur og miðpunktur fyrir íbúa á hinni flötu Oddeyri. Nafnið fékk hann líklega 1928 en lítið varð úr framkvæmdum við völlinn og hann var áfram tún að stærstum hluta. Í seinni heimstyrjöldinni var herbraggakampur inn Valhalla á Eiðsvelli og á myndinni má sjá einn þeirra lengst til vinstri á myndinni. Það var ekki fyrr en vorið 1950 sem gerð vallarins hófst, sáð var grasfræi, lagðir gangstígar og plantað blómum. Árið 1953 stóð Fegrunarfélag Akureyrar fyrir því að reisa hvítu fánastöngina í tilefni af afmæli bæjarins árið áður en þá var ritað í bæjarblöðin að Eiðsvöllur væri einn af fegurstu reitum í bænum. Dökka húsið á vellinum er Norðurgata 27 sem var byggt 1905 en var að lokum rifið. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
23. Uppskipun úr síðutogara Útgerðafélags Akureyringa um 1957. Ísfisknum var mokað í stórum kerjum á vörubílspall þar sem sólin bakar hann. Ljósmynd Geir Garðarsson.
22. Stúlkur fyrir utan skólahúsið í Gránufélagsgötu 9 þar sem Iðnskólinn á Akureyri var til húsa. Myndin er tekin 1943-44. Til vinstri á myndinni sést í stóran bíóbragga bandaríska hersins þar sem nú stendur herrafataverslun JMJ. Ljósmyndari Gunnlaugur P. Kristinsson.
21. Smábátahöfnin við slippstöðina, árið 1957.  Ljósmynd Gísli Ólafsson.
20. Eitt glæsilegasta hótel sem staðið hefur á Akureyri var Hótel Oddeyri í Strandgötu 33. Það var byggt árið 1884 en árið 1905 var húsið stækkað mikið til norðurs eftir Grundargötu og settar á það turnbyggingar. Útsýnið úr turnherbergjunum yfir Pollinn þótti einstaklega fallegt. Hótelið þótti nýstárlegt, þar var heitt bað og rafmagnsþræðir um allt hús og þjónabjöllur. Myndin er tekin um 1906 en haustið 1908 brann húsið til ösku. Ljósmynd Hallgrímur Einarsson.
18. Karlakórasambandið marserar á Ráðhústorgi. Myndin er tekin fyrir 1939. Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
19. Stórbýlið Lundur þar sem nú er Lundahverfi. Jakob Karlsson kaupmaður reisti Lund árið 1925 að fyrirmynd erlendra búgarða. Þar ríkti fyrirmyndar regla og stundvísi. Reykurinn stígur upp frá öskuhaugum bæjarbúa en stranglega bannað að kveikja í rusli. Sjálfsíkveikjur voru óvenju algengar! Ljósmynd Eðvarð Sigurgeirsson.
17. Brettastrákar að leik framan við verslun Sigga Gúmm í Hafnarstræti þar sem nú er kaffihúsið Bláa Kannan. Árið er 1991. Ljósmynd Golli.
16. Vöruflutningabílar á Stefni, árið 1957. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
15. Hestalest á leið suður Skipagötuna árið 1957.  Stefán Steinþórsson póstur á ferð með klyfjahesta. Ljósmynd Gísli Ólafsson.
Fyrri 1 2 3 4 Næsta
  • Starfsfólk
  • Opnunartími
  • Hafa samband
  • Sýningar
  • Fræðsla
    • Safnfræðsla fyrir skólastig
    • Safnfræðsla fyrir leikskóla
  • Bóka heimsókn
  • Myndir
  • Starfsemi
  • Kirkjuhvoll - sýningarsalir
  • Minjasafnskirkjan
  • Minjasafnsgarðurinn
  • Gjaldskrá
  • Gjaldskrá ljósmyndir
  • Stoðvinir
  • Stjórn Minjasafnsins
  • Aðalstræti 58
  • 600 Akureyri
  • Sími 462 4162
  • minjasafnid@minjasafnid.is

Opnunartími:daglega 11-17

Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás

Davíðshús opið þriðjudaga-laugardaga 13-17

Smámunasafnið opið  18. júní til 17. ágúst miðvikudag-sunnudags frá 13-17 .

Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30