Hótel Oddeyri, Strandgötu 33 og til vinstri verslun Sigurðar Fanndals, Strandgötu 31. Hótel Oddeyri var byggt árið 1884 og átti það Ólafur Jónsson veitingamaður, faðir Ragnars Ólafssonar kaupmanns. Eftir lát hans árið 1898 tók ekkja hans, Anna Tómasdóttir, við hótelinu og rak það af miklum dugnaði og atorku. Fékk hún leyfi til að stækka hótelið 1905 með viðbyggingu til norðurs meðfram Grundargötu og útbyggingu á framhlið milli turna. Þessi mynd er tekin eftir stækkunina, glæsilegt hús eins og sjá má. En dýrðin stóð ekki lengi. Hótel Oddeyri brann árið 1908 ásamt verslunarhúsi Sigurðar Fanndals.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan og Nonnahús - opið daglega kl. 13-16
Iðnaðarsafnið á Akureyri opið fimmtudag til sunnudags kl. 13-16.
Laufás, Leikfangahúsið, Davíðshús og Smámunasafnið - opið fyrir hópa
Opið fyrir fyrirfram bókaða hópa á öllum söfnunum.
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvítasunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Nonni's house, and the Museum Churchse: Daily 13:00-16:00
Industrial Museum open Thursday - Saturday 13:00-16:00
Laufás Akureyri, Toy Museum, Davíð writers museum, and Museum of Things! Open for prebooked groups.
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday