7. Sumardagurinn fyrsti í “Sóðavík” árið 1922. Víkin í Oddeyrarbótinni þar sem nú er Ráðhústorg var forðum kölluð Sóðavík því bæjarbúar óðu forina upp í ökkla og víkin þornaði ekki nema í allra mestu þurrkatíð. Lengi vel gekk sjórinn upp undir söluturninn sem Guðbjörn Björnsson byggði árið 1915 fyrir Jóhann Ragúelsson kaupmann. Turninn var síðar fluttur upp á hornið á Munkaþverárstræti og Hamarstígs. Ljósmynd Hallgímur Einarsson.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús og Iðnaðarsafnið - opið daglega kl. 13-16
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Gamli bærinn í Laufási, Davíðshús, Leikfangahúsið, Smámunasafnið - lokað nema fyrir fyrirfram bókaða hópa