Jón Chr. Stephánsson, timburmeistari og bæjarfulltrúi (f. 1829 - d. 1910) og ljósmyndari er hér ásamt fjölskyldu sinni fyrir utan heimili sitt Aðalstræti 52, sem byggt var árið 1840. Dóttir hans, Svafa, var ein mikilvirkasta leikkona á Akureyri í áratugi. Á síðustu árum ævi sinnar tók Jón að sér alla tilsjón og gæslu trjágarðsins, sem var sunnan við kirkjuna og gerður var um aldamótin. Aðalstræti 52 byggt 1840, Vilhelmína Lever bjó í húsinu og seldi veitingar 1853. Sveinn Skúlason keypti húsið af Vilhelmínu, svo eignaðist húsið Jón Chr. Stephánsson 1862 og bjó þar til 1910. Jón lærði smíðar erlendis og einnig ljósmyndagerð. Hann hafði smíðaverkstæði í norðurenda hússins, en ljósmyndastofu, hina fyrstu á Akureyri í áföstum skúr. Jón var mikill garðyrkjumaður og ræktaði trjágarð við hús sitt um 1890 og telja menn hann elstan slíkra garða á Akureyri.
Minjasafnið á Akureyri, Minjasafnskirkjan, Nonnahús, Iðnaðarsafnið, Leikfangahúsið og Laufás - opið daglega kl. 11-17
Smámunasafnið - opið miðvikudaga - sunnudaga kl. 13-17 til 16. ágúst
Davíðshús - opið þriðjudaga - laugardaga 13-17
Lokað aðfangadag, jóladag, gamlársdag, nýársdag og hvíta sunnudag.
Opið fyrir skólahópa frá kl. 8:30
Akureyri Museum, Akureyri Toy Museum, Nonni's house, Industrial Museum and Laufás Heritage site: Daily 11:00-17:00
Davíð writers museum: Tuesday - Saturday 13:00-17:00
Museum of Things ! : Wednesday - Sunday 13:00-17:00 from June 18 to August 16
Open for prebooked groups all year: Booking at minjasafnid@minjasafnid.is
Closed Christmas Eve, Christmas Day, New Year’s Eve, New Year’s Day and Witsunday