20.01.2014
21. janúar er boðið til afmælis í Davíðshúsi við Bjarkarstíg 6 en þann dag árið 1895 fæddist Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, eitt ástsælasta skáld Íslendinga. Davíðshús er varðveitt nánast óbreytt frá því skáldið skildi við, rétt eins og hann hafi aðeins brugðið sér frá. Í viðtækjum má jafvel heyra í skáldinu lesa ljóð og hvort ef ekki heyrist í Gullna hliðinu. Verið velkomin n.k. þriðjudagskvöld milli 20-22.Aðgangur ókeypis.
Lesa meira
20.12.2013
GLEÐILEG JÓL og gæfuríkt ár Kammerkórinn Hymnodia á Akureyri syngur JÓL í Gamla bænum Laufási
Lesa meira
10.12.2013
Hrekkjóttir jólasveinar verða í aðalhlutverki á Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 14. desember kl 14 þegar Þórarinn Hannesson les úr nýútkominni ljóðabók sinni Um jólin. Ljóðin eru um hrekkjótta jólasveina en þeir leika stórt hlutverk í jólasýningu safnsins enda 82 að tölu. Hrekkjóttur, forvitinn en meyr jólasveinn kemur á safnið þennan dag. Hvað ætli hann segi þegar hann fréttir að við erum að kynnast 81 bræðrum hans og systrum? Ætli hann tapi sér úr spenningi í rannsóknarstofu jólasveinanna? Ætli hann reyni að ganga kringum gömlu jólatrén sem mynda skóg inní miðri sýningu? Eitt er víst að hann langar mikið til að hitta krakka, skoða með þeim sýninguna, sjá Flotsokku og Faldafeyki, kíkja inní smáveröld jólasveinanna en síðast en ekki síst syngja með skemmtilegum börnum á öllum aldri. Minjasafnið er opið alla daga kl 13-17 til 6. janúar. Lokað er á hátíðisdögunum
Lesa meira
03.12.2013
Aðventudagur í Gamla bænum Laufási er orðinn fastur liður í jólaundirbúningi margra Eyfirðinga og gesta þeirra en hann verður haldinn sunnudaginn 8. desember kl 13:30-16. Þá gefst gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu. Undirbúningur jólanna hefst með jólastund fyrir alla fjölskylduna í Laufáskirkju kl 13:30 í umsjón sr. Bolla Péturs Bollasonar og kammerkórinn Hymnodia syngur jólalög.Það logar kátt á hlóðum á meðan laufabrauðið er skorið. Stórir og smáir keppast við að vinna sína vinnu, tólgarkerti verða steypt og börn á öllum aldri geta gert jólaskraut og gripið verður í spil og tréð verður skreytt. Ilmur af nýreyktu hangikjöti læðist um híbýlin og kúmenkaffi kitlar bragðlaukana. Þetta mun án efa vekja athygli hrekkjóttra jólasveinana sem elska kerti og að skella hurðum. Jólastemning verður í Kaffi Laufási þar sem gestir geta notið veitinga við jólalegan harmonikkuleik. Gestir mega ekki láta jólamarkað handverksfólks úr héraði með spennandi vöru fram hjá sér fara. Það eru Þjóðháttafélagið Handraðinn og velunnarar Laufáss sem gera það mögulegt að hægt er að upplifa jólaundirbúning gamla sveitasamfélagsins á þennan hátt. Aðgangseyrir kr. 900 fyrir fullorðna. Börn 17 ára yngri fá frítt inn
Lesa meira
03.12.2013
Héraðssýningin Hér á ég heima verður opnuð föstudagkvöldið 6. desember kl 20 í Kaffi Laufási, gamla prestshúsinu, í Grýtubakkahreppi. Sýningin er hluti af afmælissýningaröð Minjasafnsins á Akureyri sem varð 50 ára á síðasta ári. Hún samanstendur af myndum og munum frá Grýtubakkahreppi. Á opnuninni munu sagna- og kvæðafólk úr héraði leika á alls oddi og handverksfólk verður með jólamarkað. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir heimamenn og áhugasama til að koma saman og rifja upp gamlar og góðar minningar. Maður er manns gaman. Sýningin er opin kl 13-17 laugardaginn 7. desember og sunnudaginn 8. desember sem er jólastarfsdagur i Gamla bænum. Það verður því mikið um að vera þessa helgi í Laufási.
Lesa meira
28.11.2013
Ný jólahefð – vertu með frá upphafi! Minjasafnið á Akureyri opnar jólasýningu laugardaginn 30. nóvember kl 13. Í aðalhlutverki eru 82 hrekkjóttir íslenskir jólasveinar, skógur gamalla jólatrjáa, jólaskraut, spennandi jólasveinaveröld og rannsóknarstofa jólasveina. Allir þekkja jólasveinana 13 en hverjir eru hinir 69? Í ár og næstu ár verða þeir myndgerðir. Flotsokka og Faldafeykir birtast nú í gerð Ingibjargar H. Ágústsdóttur, listakonu. Gægðust inní smáveröld jólasveinanna sem Þórarinn Blöndal listamaður og leikmyndahönnuður hefur skapað. Settu þig í spor þeirra og prófaðu hluti sem tengist þeim! Hver þeirra var mesta vöðvabúntið og hrekkjóttastur? Voru það Þvengleysir og Stigaflækir eða einfaldlega Gluggagægir? Bæjarbúar hafa plantað skógi jólatrjáa í sýninguna sem eru frá árunum 1920 til okkar tíma. Ekkert jólatré í dag er án jólaskrauts og leikur það stórt hlutverk í jólahaldinu. Forvitnilegt er að sjá hvaða skraut rataði á trén og gerði heimilið jólalegt. Jólasýning Minjasafnsins á Akureyri verður sett upp árlega um ókomna framtíð með það fyrir augum að heimsókn í safnið verði framvegis fastur liður í undirbúningi jólanna. Jólasýningin er ein af afmælisgjöfum ríkisins til Akureyrarbæjar. Gjöfin var snjókorn sem nú er orðið að snjóbolta og verður án efa í framtíðinni aðlaðandi snjókarl fyrir börn á öllum aldri. Sýningin verður aldrei eins frá ári til árs en alltaf kunnugleg! Minjasafnið er opið daglega frá 30. nóvember – 6. janúar kl 13-17. Lokað er á hátíðisdögunum.
Lesa meira