14.11.2007
Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember, er helgaður Jónasi Hallgrímssyni. Af þesu tilefni kemur út bókin Jónas Hallgrímsson - Ævimynd, eftir Böðvar Guðmundsson og verður fyrirlestur um Jónas í Ketilhúsinu á Akureyri kl. 17:15 sama dag. Um helgina verður minningarstofa og fræðimannsíbúð að Hrauni í Öxnadal opnuð fyrir almenning. Opið verður frá 13-18 báða dagana.
Lesa meira
14.11.2007
Stoðvinir Minjasafnins á Akureyri verða með opinn félagsfund miðvikudaginn 14. nóvember kl. 17.00-18.00 í Minjasafninu.Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á vexti og viðgangi Minjasafnsins á Akureyri.
Lesa meira
30.10.2007
Góður rómur var gerður af dagskrá og sýningu Stoðvina Minjasafnsins um kjarnakonurnar úr Innbænum fyrsta vetrardag á Amtbókasafninu. Sýningin er opin frá 24. október til 7. nóvember á opnunartíma Amtsbókasafnins
Lesa meira
25.10.2007
Undanfarnar vikur hafa leikskólabörn verið tíðir gestir hér á safninu. Elstu börn skólanna hafa komið til að kynnast sögu bæjarins og upplifa skemmtilega heimsókn á safn. Krakkarnir í Jötunheimum á Iðavelli litu við á safninu um daginn og gerðu gott betur því þau buðu safnkennaranum að koma í heimsókn. Á leikskólanum var unnið með sjónræningja þema og því kom safnkennarinn klifjaður sjóræningjakistu sem í voru ýmsir munir.skoða myndir
Lesa meira
24.10.2007
smelltu á myndina til að skoða auglýsingunaAðgangur að dagskránni og sýningunni er ókeypis.
Lesa meira
16.10.2007
Fjölmargir gerðu sér glaðan dag í Gamla bænum Laufási laugardaginn 13. október. Þar voru haustverkin í gamla sveitasamfélaginu og hægt að upplifa gamla tíð með öllum skynfærum. Í skálanum var forvitnilegur markaður með ýmsu góðgæti fyrir munn og maga.
Lesa meira
10.10.2007
Um næstu helgi verður sýningin MATURINN 2007 haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Fyrir henni stendur félagið Matur úr héraði – Local Food og er sýningunni ætlað að endurspegla fjölbreytni í mat og matarmenningu á Norðurlandi. Sýning undir sama nafni var haldin fyrir tveimur árum en sýnendur nú eru nærri helmingi fleiri og dagskrá ennþá fjölbreyttari. Meðal viðburða á sýningunni er úrslitakeppni Klúbbs matreiðslumeistara um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007. Sýningin verður opin kl. 11 -17 á laugardag og sunnudag og er aðgangur ókeypis. Formleg opnun verður kl. 14 á laugardag þegar Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimsækir sýninguna.
Lesa meira
09.10.2007
smelltu á myndina til að skoða auglýsinguna
Lesa meira
08.10.2007
Innbærinn skartar haustlitunum þessa dagana. Hörður Geirsson, safnvörður ljósmyndadeildar, tók þessa mynd af afmælisbarninu Jóni Sveinssyni, Nonna.
Lesa meira
02.10.2007
Það er ekki á hverjum degi sem grunnskólanemendur taka þátt í að búa til sýningu á söfnum. Nú er opnuð á Minjasafninu sýning sem er afrakstur verkefnis um Gásir sem nemendur í 6. bekk Giljaskóla unnu 2006-2007.Sýningin er öllum opin á laugardögum frá 14-16 til 24. nóvember.Nemendum í 4. og 5. bekk á starfssvæði safnsins verður boðið sérstaklega á sýninguna.
Lesa meira