16.02.2022
Í tilefni 60 ára afmælis Minjasafnsins bjóðum við gestum upp á aðgöngumiða sem gildir út árið og veitir aðgang að fimm söfnum; Minjasafninu á Akureyri, Nonnahúsi, Leikfangahúsinu, Davíðshúsi og Laufási.
Verðinu er stillt í hóf og er kr. 2000 fyrir eldri en 18 ára, 1000 kr fyrir heldri borgara en ókeypis er fyrir öryrkja. Munið það er alltaf ókeypis fyrir börn.
Lesa meira
16.02.2022
Á sýningunni Hér stóð búð gefur að líta ljósmyndir úr matvöruverslunum sem í eina tíð voru á hverju horni, jafnvel margar í stuttri götu. Sýningin markar upphaf á afmælisári safnsins sem fagnar 60 ára starfsafmæli.
Lesa meira
22.11.2021
Þeir eru bæði kunnuglegir og framandi jólasveinarnir á sýningu Minjasafnsins á Akureyri, Jólasveinar einn og fleiri!
Lesa meira
18.10.2021
Orgelkrakkar er listgjörningur fyrir börn 7-12 ára sem samanstendur af byggingarlist og tónlistarflutningi.
Lesa meira
17.10.2021
Það myndaðist óvænt hátíð! Viðburður í tilefni fyrsta vetrardags varð fyrir tilviljun að þriggja daga ljóðaveislu í stofum Davíðshúss þar sem fram koma Sigmundur Ernir, Fríða Ísberg, Tómas Ævar og Þórður Sævar.
Veislan hefst fimmtudaginn 21. október og lýkur fyrsta vetrardag 23. október.
Lesa meira
22.09.2021
Mikil menningar- og samfélagsverðmæti urðu eldinum að bráð þegar eitt elsta hús í Grímsey, Miðgarðakirkja, brann. Kirkjan var mikilvægur hlekkur í samfélaginu á gleði og sorgarstundum auk þess sem hún var mikilvægur áfangastaður fyrir gesti af meginlandinu.
Lesa meira
09.09.2021
Sérstaklega velkomin á Eyfirska safnadaginn. Ókeypis aðgangur og ýmislegt á dagskrá á Minjasafninu, Nonnahúsi, Leikfangahúsinu og Davíðshúsi.
Lesa meira
05.08.2021
Viltu fylgjast með 19. aldar ljósmyndara að störfum? Á milli 13 og 14, föstudaginn 20. og laugardaginn 21. ágúst gefst einstakt tækifæri til þess að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með ljósmyndara taka ljósmyndir og framkalla með efnum og aðferðum sem notaðar voru um 1850. Þá mun Hörður Geirsson ljósmyndasérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri feta í spor Jóns Chr. Stefánssonar, timburmeistara og myndasmiðs, sem fyrstur Íslendinga tók ljósmyndir með votplötutækni sem hann lærði í Kaupmannahöfn 1858.

21.07.2021
Flamengó dúett, Davíðsdagskrá og Lög ungafólksins á Minjasafninu og í Davíðshúsi
Lesa meira